Keflavík - FH á laugardag kl. 10:00
Á laugardaginn er komið að næsta leik í Fótbolti.net-mótinu en þá koma FH-ingar í heimsókn. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni kl. 10:00. Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarar Gylfi Már Sigurðsson og Snorri Páll Einarsson. Okkar menn töpuðu fyrir Breiðablik í fyrsta leik sínum í mótinu en FH vann öruggan sigur á Grindavík.
Keflavík leikur í A-riðli mótsins ásamt Breiðablik, FH og Grindavík. Efsta liðið í riðlinum leikur síðan til úrslita í mótinu við efsta liðið í B-riðlinum og önnur lið leika um sæti.
Síðasti leikur Keflavíkur í riðlinum verður svo gegn Grindavík laugardaginn 25. janúar kl. 10:00.