Fréttir

Knattspyrna | 11. maí 2011

Keflavík - FH á miðvikudag kl. 19:15

Það er leikið þétt í Pepsi-deildinni nú í upphafi móts og næst á dagskrá hjá okkar liði er heimsókn bikarmeistara FH.  Liðin leika á Nettó-vellinum miðvikudaginn 11. maí kl. 19:15 í 3. umferð deildarinnar.  Fyrir leikinn er Keflavík með fjögur stig eftir sigur á Stjörnunni og jafntefli gegn KR en FH-ingar eru með þrjú stig eftir tap gegn Val og öruggan sigur á Blikum.  Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson og aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Birkir Sigurðarson.  Jón Sigurjónsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Keflavík og FH hafa leikið 42 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1975.  Keflavík hefur unnið 10 leiki, FH hefur unnið 18 en jafntefli hefur orðið í 14 leikjum.  Markatalan er 57-68, FH-ingum í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 6-1 sigur árið 1976 en stærsta tap gegn FH kom árið 1993 þegar FH vann 5-1 í Hafnarfirði.  Mesti markaleikur liðanna var á Kaplakrikavelli í fyrra þegar FH vann 5-3.  Fimm leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn FH í efstu deild; Magnús Þorsteinsson hefur skorað fimm mörk, þeir Guðmundur Steinarsson, Haukur Ingi Guðnason og Jóhann B. Guðmundsson hafa gert tvö og Guðjón Antoníusson hefur skorað eitt mark hver gegn FH.

Liðin hafa einnig mæst níu sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1972 en síðast í fyrra.  Bæði lið hafa unnið fjóra leiki en einum lauk með jafntefli.  Markatalan er 12-9 fyrir Keflavík.  Guðmundur Steinarsson hefur gert tvö bikarmörk gegn FH-ingum og þeir Haraldur Freyr Guðmundsson og Guðjón Árni Antoníusson eitt hvor.

Nokkur tengsl hafa verið milli Keflavíkur og FH í gegnum árin og nú leika þrír fyrrverandi leikmenn okkar með FH-ingum, þeir Gunnleifur Gunnleifsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Alen Sutej.  Þess má geta að Albert Guðmundsson og sonur hans Ingi Björn þjálfuðu bæði liðin á sínum tíma.  Meðal leikmanna sem hafa leikið fyrir bæði liðin eru Þorsteinn Bjarnason, Jón Þorgrímur Stefánsson, Kristján Hilmarsson, Valþór Sigþórsson og bræðurnir Daníel og Grétar Einarssynir.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og FH í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2010

Keflavík - FH

1-1 Guðmundur Steinarsson
2009

Keflavík - FH

1-0 Hólmar Örn Rúnarsson
2008

Keflavík - FH

1-0 Magnús Þorsteinsson
2007

Keflavík - FH

1-2 Símun Samuelsen
2006

Keflavík - FH

2-1 Baldur Sigurðsson 2
2005

Keflavík - FH

0-3
     2004    

Keflavík - FH

0-1
2002

Keflavík - FH

1-1 Adolf Sveinsson
2001

Keflavík - FH

3-1 Þórarinn Kristjánsson
Haukur Ingi Guðnason
Magnús Þorsteinsson
1995

Keflavík - FH

2-0 Marco Tanasic
Jóhann B. Guðmundsson