Keflavík - FH á sunnudag kl. 20:00
Það verður væntanlega fjörugur leikur á Sparisjóðsvellinum á sunnudag kl. 20:00 þegar Keflavík og FH mætast í annað sinn á fjórum dögum. Að þessu sinni í Landsbankadeildinni þar sem liðin skipa tvö efstu sætin, FH með 22 stig en Keflavík með 19. Okkar menn þurfa að sigra í leiknum til að halda í við FH-inga á toppi deildarinnar. Gestirnir vilja að sjálfsögðu styrkja stöðu sína á toppi deildarinnar og þá eiga þeir harma að hefna eftir tapið í bikarnum á fimmtudag. Við vekjum athygli á því að flautað verður til leiks kl. 20:00 en leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Dómari verður Jóhannes Valgeirsson og aðstoðardómarar þeir Gunnar Gylfason og Áskell Þór Gíslason. Varadómari er Valgeir Valgeirsson og Eysteinn B. Guðmundsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Keflavík og FH hafa leikið 36 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1975. Keflavík hefur unnið 8 leiki, FH hefur unnið 16 en jafntefli hefur orðið í 12 leikjum. Markatalan er 47-56, FH-ingum í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 6-1 sigur árið 1976 en stærsta tap gegn FH kom árið 1993 þegar FH vann 5-1 í Hafnarfirði. Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hefur skorað gegn FH í efstu deild; Þórarinn Kristjánsson hefur skorað tvö mörk og þeir Símun Samuelsen, Magnús Þorsteinsson og Guðmundur Steinarsson hafa skorað eitt mark hver gegn FH.
Liðin hafa einnig mæst átta sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1972 en síðast í síðustu viku. Keflavík hefur unnið fjóra leik og FH þrjá en einum lauk með jafntefli. Markatalan er 10-6 fyrir Keflavík. Guðmundur Steinarsson hefur skorað tvö bikarmörk gegn FH og Guðjón Árni Antoníusson og Patrik Redo eitt hvor.
Liðin mættust tvistvar í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og unnu FH-ingar nauman sigur í báðum leikjunum. Fyrri leikurinn fór fram í Keflavík og þá vann FH 2-1; Arnar Gunnlaugsson og Matthías Guðmundsson skoruðu mörk gestanna en Símun Samuelsen mark Keflavíkur. Seinni leiknum í Kaplakrika lauk með 3-2 sigri heimamanna. Sigurvin Ólafsson, Matthías Vilhjálmsson og Freyr Bjarnason skoruðu fyrir FH en Baldur Sigurðsson og Marco Kotilainen fyrir Keflavík.
Nokkur tengsl hafa verið milli Keflavíkur og FH í gegnum árin. Þess má geta að Albert Guðmundsson og sonur hans Ingi Björn þjálfuðu bæði liðin á sínum tíma. Meðal leikmanna sem hafa leikið fyrir bæði liðin eru Þorsteinn Bjarnason, Jón Þorgrímur Stefánsson, Kristján Hilmarsson, Valþór Sigþórsson og bræðurnir Daníel og Grétar Einarssynir.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og FH í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2007 |
Keflavík - FH |
1-2 | Símun Samuelsen | ||
2006 |
Keflavík - FH |
2-1 | Baldur Sigurðsson 2 | ||
2005 |
Keflavík - FH |
0-3 | |||
2004 |
Keflavík - FH |
0-1 | |||
2002 |
Keflavík - FH |
1-1 | Adolf Sveinsson | ||
2001 |
Keflavík - FH |
3-1 | Þórarinn Kristjánsson Haukur Ingi Guðnason Magnús Þorsteinsson | ||
1995 |
Keflavík - FH |
2-0 | Marco Tanasic Jóhann B. Guðmundsson | ||
1994 |
Keflavík - FH |
1-2 | Marco Tanasic | ||
1993 |
Keflavík - FH |
0-1 | |||
1989 |
Keflavík - FH |
1-2 | Kjartan Einarsson |