Keflavík - Fjarðabyggð á sunnudag kl. 14:00
Á sunnudag er komið að leik í 1. deild kvenna en þá heimsækir Fjarðabyggð okkur. Leikurinn verður á Nettó-vellinum og hefst kl. 14:00. Okkar unga lið hefur átt erfitt uppdráttar í sumar og situr á botni riðilsins án stiga en lið Fjarðabyggðar er með sex stig. Dómari leiksins verður Bríet Bragadóttir og aðstoðardómarar Sigurður Smári Hansson og Breki Sigurðsson.