Fréttir

Knattspyrna | 22. maí 2009

Keflavík - Fram á laugardag kl. 15:00

Keflavík tekur á móti liði Fram í 4. umferð Pepsi-deildarinnar laugardaginn 23. maí og hefst leikurinn kl. 15:00 á Sparisjóðsvellinum í Keflavík.  Fyrir leikinn er Keflavík með sex stig en Framarar hafa fjögur.  Dómari leiksins verður hinn litríki Garðar Örn Hinriksson og aðstoðardómarar þeir Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Einar Sigurðsson. Varadómari er Einar Örn Daníelsson en eftirlitsmaður KSÍ er Geir Agnar Guðsteinsson.  Það skal tekið fram að leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en að sjálfsögðu er alltaf skemmtilegra að skella sér á völlinn og sjá góðan leik í góðu veðri.

Keflavík og Fram hafa leikið 80 leiki í efstu deild.  Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík.  Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 30 leik en Fram 24 og liðin hafa skilið jöfn 26 sinnum.  Markatalan er 120-105, okkar liði í vil.  Stærsti sigur Framara var 4-0 árið 1979 en Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 árið 2004.  Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn.  Sjö leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur gert fjögur mörk, Hólmar Örn Rúnarsson og Haukur Ingi Guðnason þrjú, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Símun Samuelsen, Magnús Þorsteinsson og Stefán Örn Arnarson hafa gert eitt mark hver.

Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur.  Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum.  Markatalan er 13-17 fyrir Fram.  Hólmar Örn Rúnarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn Fram. 

Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin.  Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson og Guðmund Steinarsson.

Úrslit leikja Keflavíkur og Fram á heimavelli okkar hafa orðið þessi undanfarin ár:

2008 Keflavík - Fram 1-2 Símun Samuelsen
2007 Keflavík - Fram 2-1 Þórarinn Kristjánsson
Baldur Sigurðsson
2005 Keflavík - Fram 2-1 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
  2004

Keflavík - Fram 

1-1 Þórarinn Kristjánsson
  2002

Keflavík - Fram 

1-1 Adolf Sveinsson
  2001

Keflavík - Fram 

1-1 Haukur Ingi Guðnason
Guðmundur Steinarsson
  2000

Keflavík - Fram 

3-3 Guðmundur Steinarsson 3
  1999

Keflavík - Fram 

2-1 Kristján Brooks
Gunnar Oddsson
  1998

Keflavík - Fram 

1-0 Þórarinn Kristjánsson
1997

Keflavík - Fram 

1-0 Haukur Ingi Guðnason
1995

Keflavík - Fram 

1-1 Kjartan Einarsson
1994

Keflavík - Fram 

2-2 Gunnar Oddsson
Sverrir Þór Sverrisson