Keflavík - Fram á mánudag kl. 19:15
Keflavík tekur á móti liði Fram í 8. umferð Pepsi-deildarinnar mánudaginn 21. júní og hefst leikurinn kl. 19:15 á Njarðtaksvellinum í Njarðvík. Fyrir leikinn eru Keflavík og Fram með fjórtán stig eins og Valur og ÍBV. Það má því eiga von á hörkuleik og okkar menn vilja örugglega komast aftur á beinu brautina eftir tvo slaka leiki. Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín Jr., aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Smári Stefánsson og eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.
Keflavík og Fram hafa leikið 82 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 31 leik en Fram 25 og liðin hafa skilið jöfn 26 sinnum. Markatalan er 121-112, okkar liði í vil. Stærsti sigur Framara var 5-0 á síðasta ári og Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 árið 2004. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Sex leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur gert sjö mörk, Hörður Sveinsson hefur gert fjögur, Jóhann B. Guðmundsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Haukur Ingi Guðnason þrjú hver og Magnús Þorsteinsson hefur gert eitt mark.
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram. Hólmar Örn Rúnarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn Fram.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson, Andra Stein Birgisson, Guðmund Steinarsson og Helga Björgvinsson. Fyrir þetta tímabil gekk svo Paul McShane í okkar raðir frá Frömurum en Jón Gunnar Eysteinsson fór í hina áttina.
Úrslit leikja Keflavíkur og Fram á heimavelli okkar hafa orðið þessi undanfarin ár:
2009 | Keflavík - Fram | 1-0 | Jóhann B. Guðmundsson | |
2008 | Keflavík - Fram | 1-2 | Símun Samuelsen | |
2007 | Keflavík - Fram | 2-1 | Þórarinn Kristjánsson Baldur Sigurðsson | |
2005 | Keflavík - Fram | 2-1 | Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson | |
2004 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Þórarinn Kristjánsson | |
2002 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Adolf Sveinsson | |
2001 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Haukur Ingi Guðnason Guðmundur Steinarsson | |
2000 |
Keflavík - Fram |
3-3 | Guðmundur Steinarsson 3 | |
1999 |
Keflavík - Fram |
2-1 | Kristján Brooks Gunnar Oddsson | |
1998 |
Keflavík - Fram |
1-0 | Þórarinn Kristjánsson |