Keflavík - Fram á miðvikudag kl. 19:15
Keflavík tekur á móti liði Fram í 9. umferð Pepsi-deildarinnar miðvikudaginn 6. júlí og hefst leikurinn kl. 19:15 á Nettó-vellinum. Fyrir leikinn er Keflavík í 8.-9. sæti deildarinnar með 8 stig en Fram er í því neðsta með tvö stig. Það má því eiga von á hörkuleik; staða Framara er alvarleg og okkar menn vilja örugglega komast aftur á beinu brautina eftir fjögur töp í röð í deildinni. Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson og eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson.
Keflavík og Fram hafa leikið 84 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 31 leik en Fram 26 og liðin hafa skilið jöfn 27 sinnum. Markatalan er 123-115, okkar liði í vil. Stærsti sigur Framara var 5-0 árið 2009 og Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 árið 2004. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Fjórir leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur gert sjö mörk, Jóhann B. Guðmundsson og Haukur Ingi Guðnason þrjú hvor og Magnús Þorsteinsson hefur gert tvö mörk.
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram.
Liðin mættust tvívegis í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Fyrri leikurinn fór fram á Njarðvíkurvelli og lauk með 1-1 jafntefli. Kristján Hauksson kom Fram yfir en Magnús Þorsteinsson jafnaði. Seinn leiknum lauk með 2-1 sigri Fram á Laugardalsvelli. Halldór B. Jónsson og Almarr Örlygsson gerðu mörk Framara sem sáu reyndar alfarið um markaskorun í leiknum og gerðu eitt sjálfsmark.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson, Paul McShane, Jón Gunnar Eysteinsson, Andra Stein Birgisson, Guðmund Steinarsson og Helga Björgvinsson.
Úrslit leikja Keflavíkur og Fram á heimavelli okkar hafa orðið þessi undanfarin ár:
2010 | Keflavík - Fram | 1-1 | Magnús Þorsteinsson | |
2009 | Keflavík - Fram | 1-0 | Jóhann B. Guðmundsson | |
2008 | Keflavík - Fram | 1-2 | Símun Samuelsen | |
2007 | Keflavík - Fram | 2-1 | Þórarinn Kristjánsson Baldur Sigurðsson | |
2005 | Keflavík - Fram | 2-1 | Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson | |
2004 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Þórarinn Kristjánsson | |
2002 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Adolf Sveinsson | |
2001 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Haukur Ingi Guðnason Guðmundur Steinarsson | |
2000 |
Keflavík - Fram |
3-3 | Guðmundur Steinarsson 3 | |
1999 |
Keflavík - Fram |
2-1 | Kristján Brooks Gunnar Oddsson |