Keflavík - Fram á sunnudag kl. 14:00
Fram og Keflavík leika í 17. og næstsíðustu umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 11. september og hefst leikurinn kl. 14:00 á Keflavíkurvelli. Þetta er jafnframt síðasti heimaleikur Keflavíkur á tímabilinu. Það má reikna má hörðum leik en Keflavík er í harðri baráttu um 3ja sætið en Framarar berjast við ÍBV og Grindavík í fallslagnum. Hvert stig er því ansi dýrmætt þessa dagana. Dómari leiksins verður Jóhannes Valgeirsson, aðstoðardómarar Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Leiknir Ágústsson, fjórði dómari er Kristinn Jakobsson en eftirlitsmaður KSÍ er Geir Agnar Guðsteinsson.
Keflavík og Fram hafa leikið 75 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 27 leiki en Fram 23 og liðin hafa skilið jöfn 25 sinnum. Markatalan er 111-99, okkar liði í vil. Stærsti sigur Framara var 4-0 árið 1979 en Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 á síðasta ári. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Fjórir leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fimm mörk, Hólmar Örn Rúnarsson þrjú, Hörður Sveinsson tvö mörk og Stefán Örn Arnarson eitt.
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram. Hólmar Örn Rúnarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn Fram, það var eina mark leiksins í 16 liða úrslitum keppninnar í fyrra.
Það eru orðin 16 ár síðan Keflavík tapaði síðast á heimavelli fyrir Fram í efstu deild en það var árið 1989. Síðan hafa liðin leikið 10 leiki í Keflavík og hafa okkar menn 4 leiki en sex leikjanna hefur lokið með jafntefli, þar á meðal fjórir síðustu leikirnir.
Fram og Keflavík mættust í 8. umferð Landsbankadeildarinnar fyrr í sumar. Þá vann Keflavík í hörkuleik á Laugardalsvelli, 3-2. Stefán Örn Arnarson, Hólmar Örn Rúnarsson og Hörður Sveinsson skoruðu fyrir okkar menn en okkar menn settu líka eitt mark fyrir andstæðinganna áður en Ingvar Ólason minnkaði muninn á síðustu sekúndum leiksins.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson og svo lék fyrirliði Keflavíkur, Guðmundur Steinarsson, eitt tímabil fyrir Fram.
Úrslit leikja Keflavíkur og Fram í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2004 |
Keflavík - Fram |
1-1 |
Þórarinn Kristjánsson | |
2002 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Adolf Sveinsson | |
2001 |
Keflavík - Fram |
2-2 |
Haukur Ingi Guðnason | |
2000 |
Keflavík - Fram |
3-3 | Guðmundur Steinarsson 3 | |
1999 |
Keflavík - Fram |
2-1 | Kristján Brooks Gunnar Oddsson | |
1998 |
Keflavík - Fram |
1-0 | Þórarinn Kristjánsson | |
1997 |
Keflavík - Fram |
1-0 | Haukur Ingi Guðnason | |
1995 |
Keflavík - Fram |
1-1 | Kjartan Einarsson | |
1994 |
Keflavík - Fram |
2-2 | Gunnar Oddsson Sverrir Þór Sverrisson | |
1993 |
Keflavík - Fram |
2-1 | Óli Þór Magnússon Kjartan Einarsson |