Fréttir

Keflavík - Fylkir á mánudag kl. 19:15
Knattspyrna | 19. maí 2013

Keflavík - Fylkir á mánudag kl. 19:15

Eftir að hafa náð í fyrstu stig sumarsins ættu okkar menn að mæta ákveðnir til leiks í næsta leik í Pepsi-deildinni.  Hann verður gegn Fylki mánudaginn 23. júlí og hefst leikurinn á Nettó-vellinum kl. 19:15.  Fyrir leikinn er Keflavík í 8. sæti deildarinnar með þrjú stig en Fylkir er í því 9. með eitt stig.  Það er auðvitað ekki mikið að marka stöðuna enda mótið rétt að byrja en bæði lið þurfa að stigunum að halda fyrir baráttuna sem fram undan er.  Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, aðstoðardómarar þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Bryngeir Valdimarsson en eftirlitsmaður KSÍ er Þórarinn Dúi Gunnarsson.

Keflavík og Fylkir hafa leikið 30 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1989.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 11 leikjanna, níu sinnum hefur orðið jafntefli en Fylkir hefur unnið tíu leiki.  Markatalan er 36-43 fyrir Fylki.  Stærsti sigur Fylkis er 4-0 árin 2007 og 2000 en Keflavík hefur mest náð að sigra Fylki með 2ja marka mun.  Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Fylkismönnum í efstu deild.  Jóhann B. Guðmundsson og Hörður Sveinsson hafa gert tvö mörk hvor og þeir Magnús Þorsteinsson og Haraldur Freyr Guðmundsson og hafa gert eitt mark.

Liðin mættust 8 sinnum í næstefstu deild á árunum 1981-1992.  Keflavík vann 6 leiki, einum lauk með jafntefli og Fylkir vann einn leik.  Markatalan í B-deildinni er 15-6 fyrir Keflavík.

Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1989, 1995 og 2004.  Keflavík hefur unnið alla þrjá leikina og markatalan er 5-1. 

Liðin mættust tvisvar í deildinni í fyrra.  Fyrri leiknum í Árbænum lauk með 1-1 jafntefli þar sem  Hilmar Geir Eiðsson kom Keflavík yfir en Ingimundur Níels Óskarsson jafnaði fyrir heimamenn.  Fylkismenn unnu seinni leikinn í Keflavík 2-0 en þar gerðu Jóhann Þórhallsson og Ingimundur Níels Óskarsson mörkin.

Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin en Magnús Þórir Matthíasson lék auðvitað með Fylki í fyrra en er nú kominn aftur á heimaslóðir.  Áður hafði Haukur Ingi Guðnason leikið með báðum félögunum en hann er nú aðstoðarþjálfari Fylkisliðsins.  Þórir Sigfússon þjálfaði reyndar bæði liðin á sínum tíma og Kristinn Guðbrandsson var aðstoðarþjálfari Fylkis í tvö ár.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Fylkis í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2012 Keflavík - Fylkir 0-2  
2011 Keflavík - Fylkir 1-2 Guðmundur Steinarsson
2010 Keflavík - Fylkir 2-1 Guðmundur Steinarsson
Magnús Þorsteinsson
2009 Keflavík - Fylkir 1-0 Hólmar Örn Rúnarsson
2008 Keflavík - Fylkir 2-1 Hólmar Örn Rúnarsson
Guðmundur Steinarsson
2007 Keflavík - Fylkir 1-0 Símun Samuelsen
2006 Keflavík - Fylkir 1-1 Guðjón Árni Antoníusson
2005 Keflavík - Fylkir 2-2 Sjálfsmark
Stefán Örn Arnarson
2004 Keflavík - Fylkir 4-2 Þórarinn Kristjánsson 2
Haraldur Freyr Guðmundsson

Hörður Sveinsson
2002 Keflavík - Fylkir 3-1 Jóhann Benediktsson
Guðmundur Steinarsson
Þórarinn Kristjánsson