Keflavík - Grindavík á fimmtudag
Keflavík og Grindavík mætast í 9. umferð Landsbankadeildarinnar fimmtudaginn 30. júní. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Keflavíkurvelli en hann verður sýndur beint á Sýn. Það er nokkuð ljóst að það verður hart barist í þessum nágrannaslag. Bæði liðin vilja að sjálfsögðu ná í stigin sem í boði eru; Keflavík til að halda í við toppliðin en Grindavík stendur í harðri fallbaráttu þessa dagana. Ef miðað er við leiki þessara liða undanfarin ár má búast við fjöri og mörkum á Keflavíkurvelli. Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson og aðstoðardómarar hans þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Oddbergur Eiríksson. Gylfi Þór Orrason er varadómari og Hannes Þ Sigurðsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Keflavík og Grindavík hafa leikið 18 leiki í efstu deild frá árinu 1995. Okkar menn hafa unnið 7 leiki en nágrannar okkar 8, jafntefli hefur orðið í 3 leikjum. Markatalan er 28-29 fyrir Grindavík. Stærsti sigur Grindvíkinga var 4-0 árið 1996 en Keflavík vann 3-0 árið 1998 og 4-1 árið 2002. Mesti markaleikur þessara liða var á Keflavíkurvelli í fyrra þegar Grindavík vann 4-3. Af þeim leikmönnum sem nú leika með Keflavíkurliðinu hefur Guðmundur Steinarsson skorað fimm mörk gegn Grindavík og Hólmar Örn Rúnarsson eitt.
Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni. Það var árið 1991 og vann Keflavík þann leik með Óla Þórs Magnússonar.
Keflavík og Grindavík mættust 6 sinnum í B-deild á árunum 1990-1992. Keflavík vann þrjá leiki, tveimur lauk með jafntefli en Grindavík vann einn leik. Markatalan var 13-9, okkur í vil. Gestur Gylfason skoraði eitt mark gegn Grindavík í gömlu 2. deildinni árið 1991.
Liðin mættust tvisvar í Landsbankadeildinni síðasta sumar og vann Grindavík báða leikina en í þeim voru skoruð 12 mörk. Leikurinn í Grindavík fór 3-2 þar sem Sreten Djurevic og Zoran Ljubicic skoruðu fyrir Keflavík. Seinni leikurinn fór 4-3; þar skoruðu gestirnir sjálfsmark áður en Haraldur Freyr Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir okkar menn.
Það var ekki að fara mörgum orðum um að í gegnum árin hafa fjölmargir leikmenn leikið með báðum þessum liðum. Þar má nefna Kristinn Jóhannsson, Jóhann Benediktsson og Þorstein Bjarnason. Þetta á einnig við í dag; Gestur Gylfason lék með Grindavík og þeir Eysteinn Hauksson og Magnús Þorsteinsson eru nú í liði Grindavíkur eftir að hafa leikið með okkar liði um árabil. Síðast en ekki síst var þjálfari Grindvíkinga, Milan Stefán Jankovic, hjá Keflavík og þjálfaði liðin síðustu tvö ár við góðan orðstír.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík hafa orðið þessi í efstu deild:
2004 | Keflavík - Grindavík | 3-4 | Haraldur Freyr Guðmundsson 2 Sjálfsmark | |
2002 |
Keflavík - Grindavík |
2-2 | Hólmar Örn Rúnarsson Kristján Jóhannsson | |
2001 |
Keflavík - Grindavík |
0-2 | ||
2000 |
Keflavík - Grindavík |
2-2 | Guðmundur Steinarsson 2 | |
1999 |
Keflavík - Grindavík |
2-3 | Eysteinn Hauksson Kristján Brooks | |
1998 |
Keflavík - Grindavík |
3-0 | Eysteinn Hauksson Sasa Pavic Þórarinn Kristjánsson | |
1997 |
Keflavík - Grindavík |
2-0 | Ragnar Steinarsson Jóhann B. Guðmundsson | |
1996 |
Keflavík - Grindavík |
2-1 | Jóhann B. Guðmundsson Haukur Ingi Guðnason | |
1995 |
Keflavík - Grindavík |
1-0 | Ragnar Steinarsson |