Fréttir

Knattspyrna | 14. ágúst 2011

Keflavík - Grindavík á mánudag kl. 19:15

Keflavík og Grindavík leika í 15. umferð Pepsi-deildarinnar mánudaginn 15. ágúst.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15.  Fyrir umferðina eru bæði lið í ströggli um miðja deild; Grindavík er í 10. sæti með 13 stig en Keflavík í 7.-8. sæti með 17 stig en hefur leikið leik minna en liðin í kring.  Eins og venjulega er mikið í húfi fyrir bæði lið en auk þess er þetta auðvitað Suðurnesjaslagur þannig að það er barist um fleira en stigin.  Dómari leiksins verður hinn eldhressi Þóroddur Hjaltalín Jr. og aðstoðardómarar hans Smári Stefánsson og Eðvarð Eðvarðsson.  Þórður Ingi Guðjónsson er svo eftirlitsmaður KSÍ á leiknum. 

Keflavík og Grindavík hafa mæst 29 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 13 leiki og Grindavík 9 en sjö sinnum hefur orðið jafntefli.  Markatalan er 43-36 fyrir Keflavík.  Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigur árið 1998 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002.  Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað níu mörk, Jóhann B. Guðmundsson fimm, Magnús Þorsteinsson þrjú, Haraldur Freyr Guðmundsson tvö og Andri Steinn Birgisson hefur gert eitt mark.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991.  Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992.  Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik.  Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.

Liðin mættust fyrr í sumar í 4. umferð Pepsi-deildarinnar og þá á Grindavíkurvelli.  Okkar menn unnu þann leik 2-0 þar sem Andri Steinn Birgisson og Guðmundur Steinarsson skoruðu fyrir Keflavík.

Keflavík hefur gengið ágætlega í heimaleikjum sínum gegn Grindavík undanfarin ár og ekki tapað í fimm síðustu leikjum.  Grindvíkingar unnu síðast í Keflavík árið 2004 en síðan hefur Keflavík unnið þrjá leiki en tveimur lokið með jafntefli.

Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara.  Milan Stefán Jankovic hefur þjálfað bæði lið og í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason, Zoran Ljubicic og Eysteinn Hauksson leikið með báðum félögunum.  Í ár tefla bæði lið fram þremur leikmönnum sem hafa leikið með báðum þessum liðum.  Í leikmannahópi Grindavíkur eru það þeir Haukur Ingi Guðnason, Paul McShane og Scott Ramsay sem hafa leikið með Keflavík og í okkar herbúðum eru það Grétar Hjartarson, Andri Steinn Birgisson og Magnús Þorsteinsson sem hafa einnig leikið með Grindavík.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík hafa orðið þessi:

2010

Keflavík - Grindavík

1-1 Jóhann B. Guðmundsson
2009

Keflavík - Grindavík

1-0 Magnús Þorsteinsson
2008

Keflavík - Grindavík

3-0 Jóhann B. Guðmundsson
Guðmundur Steinarsson
Magnús Þorsteinsson
2006

Keflavík - Grindavík

2-0 Þórarinn Kristjánsson
Stefán Örn Arnarson
2005

Keflavík - Grindavík

1-1 Hörður Sveinsson
2004

Keflavík - Grindavík

3-4 Haraldur Freyr Guðmundsson 2
Sjálfsmark
     2002    

Keflavík - Grindavík

2-2   Hólmar Örn Rúnarsson
Kristján Jóhannsson
  2001

Keflavík - Grindavík

0-2  
  2000

Keflavík - Grindavík

2-2   Guðmundur Steinarsson 2
1999

Keflavík - Grindavík

2-3 Eysteinn Hauksson
Kristján Brooks
  1998

Keflavík - Grindavík

3-0   Eysteinn Hauksson
Sasa Pavic
Þórarinn Kristjánsson
  1997

Keflavík - Grindavík

3-0   Ragnar Steinarsson
Jóhann B. Guðmundsson
  1996

Keflavík - Grindavík

2-1   Jóhann B. Guðmundsson
Haukur Ingi Guðnason
1995

Keflavík - Grindavík

1-0 Ragnar Steinarsson