Keflavík - Grindavík á mánudag kl. 20:00
Keflavík og Grindavík leika í 13. umferð Pepsi-deildarinnar mánudaginn 26. júlí. Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 20:00. Fyrir umferðina eru okkar menn í 3.-4. sæti deildarinnar með 19 en Grindvíkingar eru í 10.-11. sæti með 8 stig. Eins og venjulega er mikið í húfi fyrir bæði lið en auk þess er þetta auðvitað Suðurnesjaslagur þannig að það er barist um fleira en stigin. Dómari leiksins verður Einar Örn Daníelsson og aðstoðardómarar hans Áskell Þór Gíslason og Einar Sigurðsson. Varadómari er Guðmundur Ársæll Guðmundsson en Sigurður Hannesson er svo eftirlitsmaður KSÍ á leiknum. Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst þess vegna kl. 20:00.
Keflavík og Grindavík hafa mæst 27 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995. Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 12 leiki og Grindavík 9 en sex sinnum hefur orðið jafntefli. Markatalan er 40-38 fyrir Keflavík. Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigur árið 1998 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002. Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3. Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild. Guðmundur Steinarsson hefur skorað átta mörk, Jóhann B. Guðmundsson fjögur, Magnús Þorsteinsson þrjú mörk, Haraldur Freyr Guðmundsson og Haukur Ingi Guðnason tvö og þeir Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson eitt mark hvor.
Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991. Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.
Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992. Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik. Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.
Liðin mættust fyrr í sumar í 2. umferð Pepsi-deildarinnar og þá á Grindavíkurvelli. Okkar menn unnu þann leik 1-0 þar sem Jóhann B. Guðmundsson skoraði eina mark leiksins.
Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara. Milan Stefán Jankovic hefur þjálfað bæði lið og í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason, Zoran Ljubicic og Eysteinn Hauksson leikið með báðum félögunum. Í ár eru hvorki meira né minna en þrír leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur sem hafa leikið með Grindavík, þeir Andri Steinn Birgisson, Paul McShane og Magnús Þorsteinsson. Þá er einn fyrrverandi leikmaður okkar í liði Grindvavíkur en það er auðvitað meistari Scott Ramsay.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík hafa orðið þessi:
2009 |
Keflavík - Grindavík |
1-0 | Magnús Þorsteinsson | ||
2008 |
Keflavík - Grindavík |
3-0 | Jóhann B. Guðmundsson Guðmundur Steinarsson Magnús Þorsteinsson | ||
2006 |
Keflavík - Grindavík |
2-0 | Þórarinn Kristjánsson Stefán Örn Arnarson | ||
2005 |
Keflavík - Grindavík |
1-1 | Hörður Sveinsson | ||
2004 |
Keflavík - Grindavík |
3-4 | Haraldur Freyr Guðmundsson 2 Sjálfsmark | ||
2002 |
Keflavík - Grindavík |
2-2 | Hólmar Örn Rúnarsson Kristján Jóhannsson | ||
2001 |
Keflavík - Grindavík |
0-2 | |||
2000 |
Keflavík - Grindavík |
2-2 | Guðmundur Steinarsson 2 | ||
1999 |
Keflavík - Grindavík |
2-3 | Eysteinn Hauksson Kristján Brooks | ||
1998 |
Keflavík - Grindavík |
3-0 | Eysteinn Hauksson Sasa Pavic Þórarinn Kristjánsson | ||
1997 |
Keflavík - Grindavík |
3-0 | Ragnar Steinarsson Jóhann B. Guðmundsson | ||
1996 |
Keflavík - Grindavík |
2-1 | Jóhann B. Guðmundsson Haukur Ingi Guðnason | ||
1995 |
Keflavík - Grindavík |
1-0 | Ragnar Steinarsson |