Keflavík - Grindavík á miðvikudag kl . 19:15
Miðvikudaginn 6. júní leika Keflavík og Grindavík leika í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins, bikarkeppni KSÍ. Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15. Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Birkir Sigurðarson og Haukur Erlingsson en eftirlitsmaður KSÍ verður Eyjólfur Ólafsson.
Keflavík og Grindavík hafa aðeins einu sinni áður mæst í bikarkeppninni. Það var árið 1991 þegar bæði lið léku í B-deildinni en þau drógust þá saman í 2. umferð keppninnar. Leikurinn fór fram á heimavelli okkar og Keflavík með marki Óla Þórs Magnússonar.