Fréttir

Knattspyrna | 15. september 2009

Keflavík - Grindavík á miðvikudag kl. 17:30

Grindavík og Keflavík leika í 20. umferð Pepsi-deildarinnar miðvikudaginn 16. september.  Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 17:30.  Fyrir leikinn eru okkar menn í 6. sæti deildarinnar með 26 en Grindvíkingar eru í 9.-10. sæti með 22 stig.  Það er því að litlu að keppa fyrir liðin en auðvitað er stoltið í húfi eins og alltaf þegar nágrannalið mætast.  Dómari leiksins verður Jóhannes Valgeirsson og aðstoðardómarar hans Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Leiknir Ágústsson.  Jón Sigurjónsson er svo eftirlitsmaður KSÍ á leiknum.

Keflavík og Grindavík hafa mæst 25 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 10 leiki, Grindavík 9 en sex sinnum hefur orðið jafntefli.  Markatalan er 34-29 fyrir Grindavík.  Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigrar árin 1998 og 2008 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002.  Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3.  Átta leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað átta mörk, Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú, Magnús Þorsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson og Haukur Ingi Guðnason tvö og þeir Stefán Örn Arnarson, Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson eitt mark hver.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991.  Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992.  Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik.  Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.

Liðin léku fyrr í sumar á Grindavíkurvelli í 9. umferð Pepsi-deildarinnar.  Þar varð 1-1 jafntefli þar sem Magnús Þorsteinsson skoraði fyrir Keflavík en Jósef Kristinn Jósefsson jafnaði fyrir heimamenn.

Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara.  Magnús Þorsteinsson, leikmaður Keflavíkur, lék t.d. eitt tímabil með Grindavík og í liði Grindavíkur eru nú fjórir fyrrverandi leikmenn okkar, þeir Þórarinn Kristjánsson, Scott Ramsay, Eysteinn Hauksson og Óttar Steinn Magnússon.  Þess má geta að Eysteinn skoraði einmitt fyrsta mark Keflavíkur gegn Grindavík í efstu deild.  Í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Ólafur Ingólfsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason og Zoran Ljubicic leikið með báðum félögunum.  Þá má ekki gleyma því að Milan Stefán Jankovic, fyrrverandi þjálfari og nú aðstoðarþjálfari Grindavíkur, þjálfaði Keflavík 2003 og 2004 og gerði liðið m.a. að bikarmeisturum.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík hafa orðið þessi:

2008

Keflavík - Grindavík

3-0 Jóhann B. Guðmundsson
Guðmundur Steinarsson
Magnús Þorsteinsson
2006

Keflavík - Grindavík

2-0 Þórarinn Kristjánsson
Stefán Örn Arnarson
2005

Keflavík - Grindavík

1-1 Hörður Sveinsson
2004

Keflavík - Grindavík

3-4 Haraldur Freyr Guðmundsson 2
Sjálfsmark
     2002    

Keflavík - Grindavík

2-2   Hólmar Örn Rúnarsson
Kristján Jóhannsson
  2001

Keflavík - Grindavík

0-2  
  2000

Keflavík - Grindavík

2-2   Guðmundur Steinarsson 2
1999

Keflavík - Grindavík

2-3 Eysteinn Hauksson
Kristján Brooks
  1998

Keflavík - Grindavík

3-0   Eysteinn Hauksson
Sasa Pavic
Þórarinn Kristjánsson
  1997

Keflavík - Grindavík

3-0   Ragnar Steinarsson
Jóhann B. Guðmundsson
  1996

Keflavík - Grindavík

2-1   Jóhann B. Guðmundsson
Haukur Ingi Guðnason
1995

Keflavík - Grindavík

1-0 Ragnar Steinarsson