Fréttir

Knattspyrna | 30. ágúst 2008

Keflavík - Grindavík á sunnudag kl. 18:00

Keflavík og Grindavík leika í 18. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 30. ágúst.  Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 18:00.  Fyrir leikinn eru okkar menn í toppsæti deildarinnar með 37 stig, aðeins tveimur stigum á undan FH.  Grindvíkingar eru í 7. sæti með 24 stig og sigla lygnan sjó um miðja deild.  Það er óhætt að segja að Grindavíkurliðið hafi blásið á allar hrakspár fyrir mót og staðið sig vonum framar.  Reyndar eru það einmitt Keflavík og Grindavík sem hafa bætt sig mest ef staðan í deildinni í dag er borin saman við spár í upphafi mótsins.  Það verður örugglega hart barist í þessum nágrannaslag; okkar menn þurfa auðvitað á sigri að halda í toppbaráttunni og Grindvíkingar hafa verið ótrúlega sterkir á útivöllum þar sem þeir hafa unnið sex leiki í röð og fengið 18 af stigunum 24.  Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson og aðstoðardómarar hans Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Einar Sigurðsson.  Varadómari er Ólafur Kjartansson og Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og þeir sem eiga alls ekki heimangengt þurfa því ekki að missa af neinu.

Keflavík og Grindavík hafa mæst 23 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995.  Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; bæði lið hafa unnið 9 leiki en fimm sinnum hefur orðið jafntefli.  Markatalan er 33-25 fyrir Grindavík.  Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigur árið 1998 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002.  Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Þórarinn Kristjánsson fimm, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson eitt mark hvor.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991.  Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992.  Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik.  Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.

Liðin léku í 7. umferðLandsbankadeildarinnar fyrr í sumar.  Keflavík vann þá á Grindavíkurvelli en það voru reyndar heimamenn sem skoruðu eina mark leiksins.

Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara.  Magnús Þorsteinsson, leikmaður Keflavíkur, lék t.d. eitt tímabil með Grindavík og Eysteinn Hauksson og Scott Ramsay léku báðir með Keflavík en leika nú með Grindavík.  Þess má geta að Eysteinn skoraði einmitt fyrsta mark Keflavíkur gegn Grindavík í efstu deild.  Í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason og Zoran Ljubicic leikið með báðum félögunum.  Þá má ekki gleyma því að Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, þjálfaði Keflavík 2003 og 2004 og gerði liðið m.a. að bikarmeisturum.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík hafa orðið þessi:

2006

Keflavík - Grindavík

1-2 Þórarinn Kristjánsson
Stefán Örn Arnarson
2005

Keflavík - Grindavík

1-1 Hörður Sveinsson
2004

Keflavík - Grindavík

3-4 Haraldur Freyr Guðmundsson 2
Sjálfsmark
     2002    

Keflavík - Grindavík

2-2   Hólmar Örn Rúnarsson
Kristján Jóhansson
  2001

Keflavík - Grindavík

0-2  
  2000

Keflavík - Grindavík

2-2   Guðmundur Steinarsson 2
1999

Keflavík - Grindavík

2-3 Eysteinn Hauksson
Kristján Brooks
  1998

Keflavík - Grindavík

3-0   Eysteinn Hauksson
Sasa Pavic
Þórarinn Kristjánsson
  1997

Keflavík - Grindavík

3-0   Ragnar Steinarsson
Jóhann B. Guðmundsson
  1996

Keflavík - Grindavík

2-1   Jóhann B. Guðmundsson
Haukur Ingi Guðnason
1995

Keflavík - Grindavík

1-0 Ragnar Steinarsson