Keflavík - Haukar á föstudag kl. 20:00
Í kvöld, föstudag, er komið að leik í Fótbolta.net-mótinu en þá fáum við Hauka í heimsókn í Reykjaneshöllina. Leikurinn byrjar þar kl. 20:00. Dómari verður Einar Ingi Jóhannsson og aðstoðardómarar þeir Jóhann Ingi Jónsson og Daníel Ingi Þórisson.
Okkar menn unnu fyrsta leik sinn í riðlinum en hann var gegn Hugin/Hetti/Leikni. Lokatölur þar urðu 5-0 þar sem Jóhann Birnir Guðmundsson, Jónas Guðni Sævarsson, Leonard Sigurðsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Ari Steinn Guðmundsson gerðu mörkin. Haukar töpuðu gegn Gróttu í sínum leik.
Síðasti leikur Keflavíkur í riðlinum verður næsta miðvikudag gegn Gróttu. Sá leikur verður í Reykjaneshöllinni kl. 19:00.