Keflavík - Haukar á föstudag kl. 21:00
Nú er keppni að hefjast í Lengjubikarnum og okkar menn byrja á leik gegn Haukum föstudaginn 15. febrúar. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni kl. 21:00. Okkar menn eru í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins en önnur lið í riðlinum eru KF, KR, Leiknir R., Stjarnan, Þór og Þróttur R.
Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Eðvarð Atli Bjarnason og eftirlitsmaður KSÍ er Eyjólfur Ólafsson.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta enda má segja að keppnistímabilið byrji fyrir alvöru með Lengjubikarnum.