Keflavík - Höttur á föstudag kl. 18:30
Föstudaginn 23. ágúst er komið að síðasta leik okkar í 1. deild kvenna þetta sumarið en þá kemur lið Hattar í heimsókn á Nettó-völlinn. Leikurinn hefst kl. 18:30. Dómari leiksins verður Steinar Stephensen og aðstoðardómarar þeir Njáll Trausti Gíslason og Sigurður Schram.
Keflavíkurliðið hefur átt erfitt uppdráttar í sumar enda að mestu skipað ungum og óreyndum leikmönnum og m.a. annars hafa þó nokkrir leikmenn úr 3. flokki leikið með liðinu í sumar. Þess má geta að af þeim 25 leikmönnum sem hafa leikið með Keflavík í deildinni í sumar léku 13 sinn fyrsta meistaraflokksleik á þessu ári. Liðið krækti sér þó í fyrsta stig sumarsins á dögunum þegar Keflavík og Fjarðabyggð gerðu 3-3 jafntefli.