Keflavík - Höttur á föstudag kl. 19:00
Föstudaginn 3. júní leikur kvennaliðið okkar annan leik sinn í 1. deildinni þetta sumarið. Það er Höttur sem kemur í heimsókn í Nettó-völlinn en leikurinn hefst kl. 19:00. Okkar stelpur byrjuðu mótið vel og unnu 1-0 sigur á Álftanesi í fyrstu umferðinni en lið Hattar tapaði þá 0-3 fyrir HK/Víkingi.
Við hvetjum stuðningsmenn okkar til að mæta á völlinn og hvetja stelpurnar.