Keflavík - Huginn á föstudag kl. 20:30
Föstudaginn 1. apríl leika Keflavík og Huginn í Lengjubikar karla. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 20:30. Dómari leiksins verður Frosti Viðar Gunnarsson og aðstoðardómarar eru Bryngeir Valdimarsson og Sigursteinn Árni Brynjólfsson.
Fyrir lokaumferðina í riðlinum er Keflavík í efsta sætinu með 10 stig. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara í átta liða úrslit og okkar menn eiga þegar tryggt sæti þar. Huginn er í neðsta sæti riðilsins með eitt stig.
Þá er bara að mæta og sjá skemmtilegan leik og hvetja okkar menn til dáða.