Fréttir

Knattspyrna | 20. apríl 2012

Keflavík - ÍA á laugardag kl. 14:00

Keflavík og ÍA leika í Lengjubikar kvenna á laugardaginn.  Leikurinn fer fram í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 14:00.  Dómari leiksins verður Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson.

Okkar stelpur gerðu jafntefli við Sindra í fyrsta leik sínum í riðlinum og töpuðu svo fyrir Fram í vikunni.  Skagastelpur eru langefstar í riðlinum og hafa unnið alla þrjá leiki sína með miklum mun.