Fréttir

Knattspyrna | 10. apríl 2012

Keflavík - ÍA á miðvikudag kl. 18:00

Keflavík leikur síðasta leik sinn í riðlakeppni Lengjubikarsins á miðvikudaginn þegar lið ÍA kemur í heimsókn.  Liðin leika í Reykjaneshöllinni og hefja leik kl. 18:00.  Keflavík og ÍA hafa þegar tryggt sér tvö efstu sæti riðilsins og sætí í 8 liða úrslitum keppninnar.  Leikurinn snýst þó um sigur í riðlinum og betri stöðu í úrslitakeppninni.  Fyrir leikinn eru Skagamenn með 16 stig en okkar menn með 15.  Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson og aðstoðardómarar hans þeir Einar Sigurðsson og Estanislao Plantada Siurans.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á SportTV.  Leikirnir í 8 liða úrslitum Lengjubikarsins verða fimmtudaginn 19. apríl.