Keflavík - ÍBV á fimmtudag kl. 19:15
Fimmtudaginn 24. maí er komið að leik í 5. umferð Pepsi-deildarinnar þegar Keflavík og ÍBV mætast á Nettó-vellinum kl. 19:15. FyrirKeflavík er með fjögur stig í deildinni en Eyjamenn tvö þannig að bæði lið þurfa nauðsynlega á stigunum að halda. Leikir þessar liða eru alltaf fjörugir og þess má geta að síðasti markalausi leikur þeirra var árið 1994. Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson, aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Jón Magnús Guðjónsson og eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson.
Keflavík og ÍBV hafa leikið 63 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1968. Eyjamenn hafa þar aðeins betur og hafa unnið 27 leiki, okkar menn hafa sigrað 24 sinnum en 12 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 95-105, ÍBV í vil. Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom árið 2009 en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli. Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000. Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006. Sex leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Jóhann Birnir Guðmundsson tvö og þeir Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.
Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999. Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5. Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997. Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn.
Síðasta sumar léku liðin tvisvar í Pepsi-deildinni og unnu Eyjamenn báða leikina. ÍBV vann fyrri leikinn í Keflavík 2-0 með mörkum frá Tryggva Guðmundsyni og Andra Ólafssyni. Seinni leikurinn í Eyjum fór 2-1 fyrir heimamenn þar sem Magnús Þórir Matthíasson skoraði fyrir Keflavík en Brynjar Gauti Guðjónsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson gerður mörk ÍBV.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma. Varnarjaxlarnir Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum. Það gerði einnig Zoran nokkur Ljubicic sem núu er auðvitað þjálfari okkar. Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og ÍBV í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2011 | Keflavík - ÍBV | 0-2 | |
2010 | Keflavík - ÍBV | 4-1 |
Hörður Sveinsson Arnór Ingvi Traustason Magnús Þorsteinsson Bojan Stefán Ljubicic |
2009 | Keflavík - ÍBV | 6-1 |
Guðmundur Steinarsson 2 Símun Samuelsen 2 Alen Sutej Haraldur Freyr Guðmundsson |
2006 | Keflavík - ÍBV | 6-2 |
Þórarinn Kristjánsson 2 Stefán Örn Arnarson 2 Kenneth Gustavsson Guðmundur Steinarsson |
2005 | Keflavík - ÍBV | 2-3 |
Hörður Sveinsson Ólafur Jón Jónsson |
2004 | Keflavík - ÍBV | 2-5 |
Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson |
2002 | Keflavík - ÍBV | 1-0 | Haukur Ingi Guðnason |
2000 | Keflavík - ÍBV | 1-2 | Kristján Brooks |
1999 | Keflavík - ÍBV | 1-1 | Kristján Brooks |
1998 | Keflavík - ÍBV | 0-3 |