Fréttir

Knattspyrna | 24. september 2010

Keflavík - ÍBV á laugardag kl. 14:00

Keflavík og ÍBV mætast í 22. og síðustu umferð Pepsi-deildarinnar laugardaginn 25. september.  Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og flautað verður til leiks kl. 14:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 7. sæti deildarinnar með 27 stig en Eyjamenn í 2. sæti með 42 stig.  Það þarf ekki að taka fram að ÍBV er í harðri baráttu við Breiðablik og FH um Íslandsmeistaratitilinn í ár en okkar menn hafa reyndar ekki að miklu að keppa.  Það má því búast við hörkuleik og mikilli stemmningu en búist er við að nokkur hundruð stuðningsmanna ÍBV mæti og styðji sitt lið.  Það er því full ástæða fyrir okkar stuðningsmenn að mæta og sjá spennandi leik því okkar lið stefnir að sjálfsögðu á sigur í þessum leik sem öðrum.  Dómari leiksins verður hinn fjölhæfi Jóhannes Valgeirsson og aðstoðardómarar hans þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Birkir Sigurðarson.  Varadómari verður Valgeir Valgeirsson en Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ. 

Keflavík og ÍBV hafa leikið eina 60 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968.  Eyjamenn hafa þar aðeins betur og hafa unnið 26 leiki, okkar menn hafa sigrað 22 sinnum en 12 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 90-101, ÍBV í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom í lokaleiknum í fyrra en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli.  Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000.  Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006.  Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Haukur Ingi Guðnason og Hörður Sveinsson þrjú, Jóhann Birnir Guðmundsson tvö og þeir Magnús Þórir Matthíasson, Alen Sutej og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999.  Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5.  Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997.  Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn. 

Fyrr í sumar mættust þessi lið í 11. umferð deildarinnar og þá sigruðu heimamenn 2-1 úti í Eyjum.  Magnús Þórir Matthíasson gerði mark Keflavíkur en Eiður Aron Sigurbjörnsson og Andri Ólafsson gerðu mörk heimamanna í þeim leik.

Þess má geta að þessi lið léku einmitt á Sparisjóðsvellinum í lokaumferðinni í fyrra.  Þá hafði hvorugt lið að nokkru að keppa en Keflavík lauk deildinni í 6. sæti og ÍBV í því 10.  Okkar menn gengu á lagið og unnu 6-1 fyrir framan 426 áhorfendur en það má fastlega reikna með því að stemmningin verði önnur að þessu sinni.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma.  Það þarf ekki að taka fram að Bjarni Hólm Aðalsteinsson gekk til liðs við okkur frá Vestmannaeyjum í fyrra.  Varnarjaxlarnir Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum sem og Zoran nokkur Ljubicic.  Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og ÍBV í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2009

Keflavík - ÍBV

6-1 Guðmundur Steinarsson 2
Símun Samuelsen 2
Alen Sutej
Haraldur Freyr Guðmundsson
2006

Keflavík - ÍBV

6-2 Þórarinn Kristjánsson 2
Stefán Örn Arnarson 2
Kenneth Gustavsson
Guðmundur Steinarsson
     2005    

Keflavík - ÍBV

2-3 Hörður Sveinsson
Ólafur Jón Jónsson
2004

Keflavík - ÍBV

2-5 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
2002

Keflavík - ÍBV

1-0 Haukur Ingi Guðnason
2001

Keflavík - ÍBV

0-2
2000

Keflavík - ÍBV

1-2 Kristján Brooks
1999

Keflavík - ÍBV

1-1 Kristján Brooks
1998

Keflavík - ÍBV

0-3
1997

Keflavík - ÍBV

1-1 Ragnar Steinarsson