Keflavík - ÍBV á laugardag kl. 16:00
Keflavík og ÍBV mætast í 22. og síðustu umferð Pepsi-deildarinnar laugardaginn 26. september. Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og flautað verður til leiks kl. 16:00. Leikurinn skiptir litlu máli fyrir liðin tvö en fyrir hann er Keflavík í 6. sæti deildarinnar með 30 stig en Eyjamenn í 9.-10. sæti með 22 stig. Keflavík getur náð 5. sætinu með sigri og fyrir gestina ræður síðasta umferðin því hvort liðið lýkur mótinu í 9. eða 10. sæti. Þannig að áhorfendur ættu ekki að þurfa að láta spennuna að fara með sig hvað úrslitin varðar. Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson og aðstoðardómarar hans þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson. Varadómari verður Jóhannes Valgeirsson en Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ. Þess má geta að dómararnir fjórir í þessum leik eru einmitt að undirbúa sig undir verkefni í Evrópudeildinni. Þar munu þeir dæma leik Anderlecht og Ajax ásamt Þorvaldi Árnasyni og Keflvíkingnum Magnúsi Þórissyni sem bætast í hópinn sem "endalínudómarar".
Keflavík og ÍBV hafa leikið eina 58 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968. Eyjamenn hafa þar betur og hafa unnið 25 leiki, okkar menn hafa sigrað 21 sinni en 12 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 86-97, ÍBV í vil. Stærstu sigrar Keflavíkur eru 4-0 leikir árin 1971 og 1993 og 6-2 sigur í Keflavík árið 2006 en þá léku liðin einmitt síðast. Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000. Mesti markaleikur þessara liða er 5-3 sigur Keflavíkinga á heimavelli árið 1971 og 6-2 leikurinn árið 2006. Sex leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fjögur mörk, Haukur Ingi Guðnason og Hörður Sveinsson þrjú mörk, Stefán Örn Arnarson og Jóhann B. Guðmundsson tvö og Símun Samuelsen eitt mark.
Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999. Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5. Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997. Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn.
Fyrr í sumar mættust þessi lið í 11. umferð deildarinnar og gerðu þá 2-2 jafntefli úti í Eyjum. Haukur Ingi Guðnason skoraði bæði mörk Keflavíkur en Eiður Aron Sigurbjörnsson og Andri Ólafsson gerðu mörk heimamanna í þeim leik.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma. Það þarf ekki að taka fram að Bjarni Hólm Aðalsteinsson gekk til liðs við okkur í vor frá Vestmannaeyjum. Varnarjaxlarnir Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum sem og Zoran nokkur Ljubicic. Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og ÍBV í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2006 |
Keflavík - ÍBV |
6-2 | Þórarinn Kristjánsson 2 Stefán Örn Arnarson 2 Kenneth Gustavsson Guðmundur Steinarsson | ||
2005 |
Keflavík - ÍBV |
2-3 | Hörður Sveinsson Ólafur Jón Jónsson | ||
2004 |
Keflavík - ÍBV |
2-5 | Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson | ||
2002 |
Keflavík - ÍBV |
1-0 | Haukur Ingi Guðnason | ||
2001 |
Keflavík - ÍBV |
0-2 | |||
2000 |
Keflavík - ÍBV |
1-2 | Kristján Brooks | ||
1999 |
Keflavík - ÍBV |
1-1 | Kristján Brooks | ||
1998 |
Keflavík - ÍBV |
0-3 | |||
1997 |
Keflavík - ÍBV |
1-1 | Ragnar Steinarsson | ||
1996 |
Keflavík - ÍBV |
1-0 | Þórarinn Kristjánsson |