Keflavík - ÍBV á mánudag
Keflavík og ÍBV mætast í 11. umferð Landsbankadeildarinnar mánudaginn 18. júlí. Leikurinn fer fram á Keflavíkurvelli og flautað verður til leiks kl. 19:15. Þessi leikur er báðum liðum mikilvægur eins og aðrir leikir í deildinni. Eftir tap og jafntefli þurfa okkar menn á stigunum að halda til að tryggja stöðu sína í efri hluta deildarinnar. Eyjamenn hafa verið í fallbaráttu í sumar en eru komnir úr fallsæti og munu að sjálfsögðu leggja sig alla fram til að krækja í stigin. Dómari leiksins verður Egill Már Markússon, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Sævar Jónsson en eftirlitsmaður KSÍ er Eiríkur Helgason.
Keflavík og ÍBV hafa leikið eina 54 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968. Eyjamenn haft betur og hafa unnið 24 leiki, okkar menn hafa sigrað 20 sinnum en 10 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 75-89, ÍBV í vil. Stærstu sigrar Keflavíkur eru 4-0 leikir árin 1971 og 1993. Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000. Mesti markaleikur þessara liða er 5-3 sigur Keflavíkinga á heimavelli árið 1971. Fjórir leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað þrívegis, Hörður Sveinsson tvívegis og Ingvi Rafn Guðmundsson og Gestur Gylfason eitt mark hvor.
Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999. Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5. Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997. Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn. Gestur Gylfason hefur skorað tvisvar gegn ÍBV í bikarnum, í bikarúrslitaleiknum áðurnnefnda og einnig í bikarleik árið 1999.
Fyrr í sumar mættust liðin í 2. umferð Landsbankadeildarinnar og þá bárum við sigur úr býtum úti í Eyjum. Leiknum lauk 3-2 og skoruðu Hörður Sveinsson, Guðmundur Steinarsson og Ingvi Rafn Guðmundsson mörk Keflavíkur en Steingrímur Jóhannesson og Andri Ólafsson skoruðu fyrir ÍBV.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma. Varnarjaxlarnir Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum sem og Zoran nokkur Ljubicic. Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og ÍBV í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2004 |
Keflavík - ÍBV |
2-5 | Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson | ||
2002 |
Keflavík - ÍBV |
1-0 | Haukur Ingi Guðnason | ||
2001 |
Keflavík - ÍBV |
0-2 | |||
2000 |
Keflavík - ÍBV |
1-2 | Kristján Brooks | ||
1999 |
Keflavík - ÍBV |
1-1 | Kristján Brooks | ||
1998 |
Keflavík - ÍBV |
0-3 | |||
1997 |
Keflavík - ÍBV |
1-1 | Ragnar Steinarsson | ||
1996 |
Keflavík - ÍBV |
1-0 | Þórarinn Kristjánsson | ||
1995 |
Keflavík - ÍBV |
1-0 | Marco Tanasic | ||
1994 |
Keflavík - ÍBV |
0-0 |
Mesti markaleikur Keflavíkur og ÍBV hingað til var 5-3 sigur Keflavíkur á heimavelli árið 1971. Hér má sjá frásögn Morgunblaðsins frá leiknum. Baráttan í fyrirsögninni á við baráttuna um Íslandsmeistaratitlinn en henni lauk með því að Keflavík varð Íslandsmeistari. Niðurstaða blaðsins um leikinn: „Keflvíkingar ákveðnir en nokkuð grófir“.