Fréttir

Knattspyrna | 17. mars 2012

Keflavík - ÍBV á sunnudag kl. 14:00

Keflavík og ÍBV leika í Lengjubikarnum sunnudaginn 18. mars.  Liðin leika í Reykjaneshöllinni og hefja leik kl. 14:00.  Fyrir leikinn hefur Keflavík hlitið sex stig en Eyjamenn þrjú stig í þremur leikjum.  Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og honum til aðstoðar verða Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og Einar Sigurðsson.  Fyrir þá sem ekki komast á leikinn má geta þess að hann verður sýndur beint á Sport TV.