Keflavík - ÍBV á sunnudag kl. 14:00
Sunnudaginn 14. febrúar er komið að fyrsta leik okkar manna í Lengjubikarnum þetta árið en þá koma Eyjamenn í heimsókn. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 14:00. Dómari verður Helgi Mikael Jónasson og aðstoðardómarar þau Frosti Viðar Gunnarsson og Rúna Kristín Stefánsdóttir.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og sjá skemmtilegan leik.