Fréttir

Keflavík - ÍBV á sunnudag kl. 16:00
Knattspyrna | 21. september 2013

Keflavík - ÍBV á sunnudag kl. 16:00

Sunnudaginn 22. september er komið að leik í 21. og næstsíðustu umferð Pepsi-deildarinnar þegar Keflavík og ÍBV mætast á Nettó-vellinum kl. 16:00.  Okkar menn þurfa enn á stigum að halda í botnbaráttunni en fyrir leikinn er Keflavík í 8. sæti deildarinnar með 21 stig.  Eyjamenn sigla hisn vegar lygnan sjó um miðjan deild en liðið er í 6. sætinu með 29 stig.  Leikir þessar liða eru alltaf fjörugir og þess má geta að síðasti markalausi leikur þeirra var árið 1994.  Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Ingi Guðjónsson.

Keflavík og ÍBV hafa leikið 66 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1968.  Það hefur verið mikið jafnræði með liðunum en Eyjamenn hafa unnið 27 leiki, okkar menn hafa sigrað 26 sinnum en 13 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 98-106, ÍBV í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom árið 2009 en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli.  Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000.  Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006.  Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað fimm mörk, Jóhann Birnir Guðmundsson þrjú, Magnús Þórir Matthíasson tvö  og þeir Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999.  Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5.  Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997.  Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn. 

Liðin léku fyrri leik sinn í sumar á Hásteinsvelli í Eyjum en honum þurfti að fresta og fór leikurinn ekki fram fyrr en seinni hluta ágúst.  Þar varð niðurstaðan 1-1 jafntefli þar sem Hörður Sveinsson skoraðí fyrir Keflavík en Jón Ingason fyrir heimamenn.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma.  Varnarjaxlarnir Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum.  Það gerði einnig Zoran nokkur Ljubicic.  Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og ÍBV í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2012 Keflavík - ÍBV 1-0 Jóhann Birnir Guðmundsson
2011 Keflavík - ÍBV 0-2  
2010 Keflavík - ÍBV 4-1 Hörður Sveinsson
Arnór Ingvi Traustason
Magnús Þorsteinsson
Bojan Stefán Ljubicic
2009 Keflavík - ÍBV 6-1 Guðmundur Steinarsson 2
Símun Samuelsen 2
Alen Sutej
Haraldur Freyr Guðmundsson
2006 Keflavík - ÍBV 6-2 Þórarinn Kristjánsson 2
Stefán Örn Arnarson 2
Kenneth Gustavsson
Guðmundur Steinarsson
2005 Keflavík - ÍBV 2-3 Hörður Sveinsson
Ólafur Jón Jónsson
2004 Keflavík - ÍBV 2-5 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
2002 Keflavík - ÍBV 1-0 Haukur Ingi Guðnason
2000 Keflavík - ÍBV 1-2 Kristján Brooks
1999 Keflavík - ÍBV 1-1 Kristján Brooks