Keflavík - ÍBV á sunnudag kl. 20:00
Keflavík og ÍBV mætast í 5. umferð Pepsi-deildarinnar sunnudaginn 22. maí. Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og flautað verður til leiks kl. 20:00. Fyrir leikinn er Keflavík í 2. sæti deildarinnar með 8 stig en Eyjamenn í 3.-5. sæti með 7 stig. Pepsi-deildin er óvenjujöfn í upphafi móts og því er hvert stig dýrmætt. Dómari leiksins verður hinn fjölhæfi Örvar Sær Gíslason og aðstoðardómarar hans þeir Einar Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Varadómari verður Valgeir Valgeirsson en Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ. Fyrir þá sem ekki komast á völlinn má geta þess að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Keflavík og ÍBV hafa leikið 61 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1968. Eyjamenn hafa þar aðeins betur og hafa unnið 25 leiki, okkar menn hafa sigrað 24 sinnum en 12 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 94-101, ÍBV í vil. Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom árið 2009 en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli. Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000. Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006. Átta leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Haukur Ingi Guðnason þrjú, Jóhann Birnir Guðmundsson tvö og þeir Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic, Magnús Þórir Matthíasson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.
Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999. Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5. Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997. Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn.
Síðasta sumar léku liðin tvisvar í Pepsi-deildinni og vann hvort lið sinn heimaleik. Eyjamenn unnu 2-1 þar Andri Ólafsson og Eiður Aron Sigubjörnsson gerðu mörk þeirra en Magnús Þórir Matthíasson skoraði fyrir Keflavík. Liðin mættust svo í Keflavík í lokaumferðinni og þeim leik lauk með 4-1 sigri Keflavíkur. Hörður Sveinsson, Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þorsteinsson og Bojan Stefán Ljubicic skoruðu fyrir Keflavík en Denis Sytnik gerði mark gestanna.
Keflavík hefur unnið þrjá síðustu heimaleiki gegn ÍBV en þeir hafa allir verið mikilir markaleikir Markatalan í þessum þremur leikjum er 16-4 fyrir Keflavík.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma. Varnarjaxlarnir Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum sem og Zoran nokkur Ljubicic. Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og ÍBV í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2010 |
Keflavík - ÍBV |
4-1 | Hörður Sveinsson Arnór Ingvi Traustason Magnús Þorsteinsson Bojan Stefán Ljubicic | ||
2009 |
Keflavík - ÍBV |
6-1 | Guðmundur Steinarsson 2 Símun Samuelsen 2 Alen Sutej Haraldur Freyr Guðmundsson | ||
2006 |
Keflavík - ÍBV |
6-2 | Þórarinn Kristjánsson 2 Stefán Örn Arnarson 2 Kenneth Gustavsson Guðmundur Steinarsson | ||
2005 |
Keflavík - ÍBV |
2-3 | Hörður Sveinsson Ólafur Jón Jónsson | ||
2004 |
Keflavík - ÍBV |
2-5 | Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson | ||
2002 |
Keflavík - ÍBV |
1-0 | Haukur Ingi Guðnason | ||
2001 |
Keflavík - ÍBV |
0-2 | |||
2000 |
Keflavík - ÍBV |
1-2 | Kristján Brooks | ||
1999 |
Keflavík - ÍBV |
1-1 | Kristján Brooks | ||
1998 |
Keflavík - ÍBV |
0-3 |