Fréttir

Keflavík - ÍR á miðvikudag kl. 19:15
Knattspyrna | 13. maí 2014

Keflavík - ÍR á miðvikudag kl. 19:15

Meistaraflokkur kvenna leikur sinn fysta leik í sumar miðvikudaginn 14. maí.  Þá leika Keflavík og ÍR í 1. umferð Borgunarbikarsins en leikurinn verður á Nettó-vellinum og hefst kl. 19:15.  Dómari leiksins verður Skúli Freyr Brynjólfsson og aðstoðardómarar þeir Sigurður Smári Hansson og Ægir Magnússon.

Þetta er í fyrsta skipti sem Keflavík og ÍR mætast í bikarkeppni kvenna.  Liðin hafa leikið fjóra leiki í efstu deild árin 2007 og 2009 og hafa unnið tvo leiki hvort.  Markatalan er 11-4 fyrir Keflavík.  Liðin mættust tvívegis í B-deildinni árið 1984 og þá vann Keflavík báða leikina, samanlagt 14-0.