Keflavík - KR á fimmtudag kl. 17:00
Keflavík og KR mætast í Pepsi-deildinni fimmtudaginn 22. september en þessum leik var frestað í 13. umferð deildarinnar. Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 17:00. Fyrir umferðina er Keflavík í 7.-9. sæti með 21 stig en KR er í 1.-2. sæti með 40 stig. Það er því mikið í húfi fyrir bæði lið þó þau séu í baráttu í sitt hvorum enda deildarinnar. Dómari leiksins verður málarinn eldhressi Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar Gunnar Sverrir Gunnarsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Eyjólfur Ólafsson.
Keflavík og KR hafa leikið 90 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 30 leikjum, 28 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 125-136, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Fjórir leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað ellefu mörk gegn KR, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Hilmar Geir Eiðsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hvor.
Liðin hafa mæst 12 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast nú í sumar. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 7. Markatalan í bikarnum er 20-26 fyrir KR. Magnús Þórir Matthíasson, Andri Steinn Birgisson, Guðmundur Steinarsson og Guðjón Antoníusson hafa allir skorað eitt bikarmark gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.
Fyrr í sumar mættust liðin á KR-velli og gerðu þá 1-1 jafntefli. Hilmar Geir Eiðsson gerði mark Keflavíkur en Óskar Örn Hauksson skoraði fyrir KR. Liðin léku svo aftur á heimavelli KR-inga í 8 liða úrslitum Valitor-bikarsins og þá vann KR 3-2. Magnús Þórir Matthíasson og Andri Steinn Birgisson skoruðu fyrir Keflavík í leiknum en Baldur Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson og Guðjón Baldvinsson gerðu mörk KR.
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson og svo auðvitað Willum Þór Þórsson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Seinni árin hafa Haukur Ingi Guðnason, Stefán Gíslason, Jónas Guðni Sævarsson og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða. Einn fyrrverandi leikmaður okkar, Baldur Sigurðsson, leikur nú með KR.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2010 |
Keflavík - KR |
0-1 | |||
2009 |
Keflavík - KR |
1-2 | Guðmundur Steinarsson | ||
2008 |
Keflavík - KR |
4-2 | Guðmundur Steinarsson 2 Hörður Sveinsson Símun Samuelsen | ||
2007 |
Keflavík - KR |
1-1 | Símun Samuelsen | ||
2006 |
Keflavík - KR |
3-0 | Magnús Þorsteinsson Daniel Severino Símun Samuelsen | ||
2005 |
Keflavík - KR |
2-1 | Guðmundur Steinarsson 2 | ||
2004 |
Keflavík - KR |
3-1 | Stefán Gíslason Scott Ramsay Hörður Sveinsson | ||
2002 |
Keflavík - KR |
0-1 | |||
2001 |
Keflavík - KR |
3-1 | Þórarinn Kristjánsson 2 Guðmundur Steinarsson | ||
2000 |
Keflavík - KR |
1-0 | Zoran Ljubicic |