Fréttir

Keflavík - KR á fimmtudag kl. 20:00
Knattspyrna | 10. júlí 2012

Keflavík - KR á fimmtudag kl. 20:00

Keflavík og KR mætast í Pepsi-deildinni fimmtudaginn 12. júlí en leikurinn er í 11. umerð deildarinnar og þar með lýkur fyrri umferð mótsins..  Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 20:00.  Fyrir umferðina er Keflavík í 4.-7. sæti með 14 stig en KR er í efsta sætinu með 22 stig.  Það er því mikið í húfi og leikir þessara liða eru yfirleitt fjörugir og dramatískir.  Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson, aðstoðardómarar Smári Stefánsson og Ingvar Örn Gíslason, varadómari Birkir Sigurðarson og eftirlitsmaður KSÍ verður Þórarinn Dúi Gunnarsson. 

Keflavík og KR hafa leikið 91 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1958.  Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 31 leik, 28 leikjanna hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 127-139, KR í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974.  Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað ellefu mörk gegn KR, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Frans Elvarsson, Hilmar Geir Eiðsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 12 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast nú í sumar.  Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 7.  Markatalan í bikarnum er 20-26 fyrir KR.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR.

Síðasta sumar mættust liðin að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni og einnig í bikarkeppninni.  Fyrst mættust liðin á KR-velli og gerðu þá 1-1 jafntefli.  Hilmar Geir Eiðsson gerði mark Keflavíkur en Óskar Örn Hauksson skoraði fyrir KR.  Liðin léku svo aftur á heimavelli KR-inga í 8 liða úrslitum bikarsins og þá vann KR 3-2.  Magnús Þórir Matthíasson og Andri Steinn Birgisson skoruðu fyrir Keflavík í leiknum en Baldur Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson og Guðjón Baldvinsson gerðu mörk KR.  Deildarleik liðanna á Nettó-vellinum lauk einnig með 3-2 sigri KR.  Frans Elvarsson og Magnús Þórir Matthíasson skoruðu fyrir Keflavík en Baldur Sigurðsson gerði tvö marka gestanna og Aron Bjarki Jósepsson gerði sigurmarkið undir lok leiksins.

Keflavík hefur tapað síðustu þremur heimaleikjum gegn KR í deildinni.  Þar áður hafði KR-ingum reyndar ekki tekist að sigra í fimm leikjum í röð á okkar heimavelli þannig að það hafa skipst á skin og skúrir í þessum leikjum undanfarin ár.

Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum.  Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross, Pétur Pétursson og Willum Þór Þórsson hafa allir þjálfað bæði liðin.  Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna.  Seinni árin hafa Haukur Ingi Guðnason, Stefán Gíslason, Jónas Guðni Sævarsson og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.  Einn fyrrverandi leikmaður okkar, Baldur Sigurðsson, leikur nú með KR.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:


2011 Keflavík - KR 2-3 Frans Elvarsson
Magnús Þórir Matthíasson
2010 Keflavík - KR 0-1  
2009 Keflavík - KR 1-2 Guðmundur Steinarsson
2008 Keflavík - KR 4-2 Guðmundur Steinarsson 2
Hörður Sveinsson
Símun Samuelsen
2007 Keflavík - KR 1-1 Símun Samuelsen
2006 Keflavík - KR 3-0 Magnús Þorsteinsson
Daniel Severino
Símun Samuelsen
2005 Keflavík - KR 2-1 Guðmundur Steinarsson 2
2004 Keflavík - KR 3-1 Stefán Gíslason
Scott Ramsay
Hörður Sveinsson
2002 Keflavík - KR 0-1  
2001 Keflavík - KR 3-1 Þórarinn Kristjánsson 2
Guðmundur Steinarsson