Keflavík - KR á laugardag kl. 16:00
Keflavík og KR nætast í 18. umferð Pepsi-deildarinnar laugardaginn 22. ágúst. Leikur liðanna fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 16:00. Það er óhætt að hvetja stuðningsmenn til að mæta á þennan leik enda er jafnan mikið fjör þegar þessi lið mætast. Fyrir leikinn er Keflavík í 4. sæti deildarinnar með 25 stig en KR er í 3. sæti með 30 stig. Keflavík hefur gengið vel á heimavelli gegn KR undanfarin ár og m.a. unnið sjö af síðustu tíu leikjum liðanna í Keflavík. KR hefur unnið tvo þessara leikja og einum leik hefur lokið með jafntefli. Dómari leiksins verður Eyjólfur M. Kristinsson, aðstoðardómarar Oddbergur Eiríksson og Frosti Viðar Gunnarsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Einar K. Guðmundsson.
Keflavík og KR hafa leikið 86 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 28 leikjum, 26 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 123-132, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Níu leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað hvorki fleiri né færri en tíu mörk gegn KR, Símun Samuelsen fjögur, Hörður Sveinsson hefur skorað þrjú mörk, Hólmar Örn Rúnarsson tvö og þeir Alen Sutej, Jón Gunnar Eysteinsson, Magnús Þorsteinsson, Haukur Ingi Guðnason og Jóhann B. Guðmundsson hafa skorað eitt mark hver.
Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast í úrslitaleiknum árið 2006. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 6. Markatalan í bikarnum er 18-23 fyrir KR. Guðmundur Steinarsson og Guðjón Antoníusson hafa skorað eitt bikarmark hvor gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.
Liðin mættust fyrr í sumar í 7. umferð deildarinnar og þá unnu KR-ingar 4-1 á heimavelli sínum. Alen Sutej skoraði mark Keflavíkur en Guðmundur Benediktsson, Jónas Guðni Sævarsson, Óskar Örn Hauksson og Baldur Sigurðsson gerðu mörk KR.
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Seinni árin hafa Jónas Guðni Sævarsson, Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða. Nú leikur Baldur Sigurðsson með KR og Haukur Ingi Guðnason lék með KR á sínum tíma.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2008 |
Keflavík - KR |
4-2 | Guðmundur Steinarsson 2 Hörður Sveinsson Símun Samuelsen | ||
2007 |
Keflavík - KR |
1-1 | Símun Samuelsen | ||
2006 |
Keflavík - KR |
3-0 | Magnús Þorsteinsson Daniel Severino Símun Samuelsen | ||
2005 |
Keflavík - KR |
2-1 | Guðmundur Steinarsson 2 | ||
2004 |
Keflavík - KR |
3-1 | Stefán Gíslason Scott Ramsay Hörður Sveinsson | ||
2002 |
Keflavík - KR |
0-1 | |||
2001 |
Keflavík - KR |
3-1 | Þórarinn Kristjánsson 2 Guðmundur Steinarsson | ||
2000 |
Keflavík - KR |
1-0 | Zoran Ljubicic | ||
1999 |
Keflavík - KR |
1-3 | Eysteinn Hauksson | ||
1998 |
Keflavík - KR |
1-0 | Róbert Sigurðsson |