Keflavík - KR á miðvikudag kl. 20:00
Þá er komið að næsta leik í 1. deild kvenna en þá fá stelpurnar okkar KR-inga í heimsókn. Leikurinn verður á Nettó-vellinum á miðvikudag kl. 20:00. Fyrir leikinn er okkar lið í botnsæti riðilsins án stiga en KR er í 3. sæti og í harðri baráttu um tvö efstu sætin sem gefa sæti í úrslitakeppni deildarinnar. Dómari leiksins verður Svanlaugur Þorsteinsson og aðstoðardómarar hans þeir Ægir Magnússon og Njáll Trausti Gíslason.