Keflavík - KR á sunnudag kl. 14:00
Keflavík og KR nætast í 6. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 8. júní. Leikur liðanna fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 14:00. Það er óhætt að hvetja stuðningsmenn til að mæta á þennan leik enda er jafnan mikið fjör þegar þessi lið mætast. Fyrir leikinn er Keflavík í 2. sæti deildarinnar með 12 stig en KR er í 8.-9. sæti með 6 stig. Keflavík hefur gengið vel á heimavelli gegn KR undanfarin ár og m.a. unnið sex af síðustu tíu leikjum liðanna í Keflavík. KR hefur unnið tvo þessara leikja og tveimur hefur lokið með jafntefli. Dómari leiksins verður Jóhannes Valgeirsson, aðstoðardómarar Sigurður Óli Þórleifsson og Áskell Þór Gíslason og eftirlitsmaður KSÍ verður Jón Sigurjónsson. Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og þeir sem eru löglega afsakaðir og komast ekki á völlinn geta því fylgst með honum þar.
Keflavík og KR hafa leikið 83 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 31 leikjum en KR í 27 leikjum, 25 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 116-124, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sjö mörk, Þórarinn Kristjánsson fjögur, Símun Samuelsen þrjú, Hólmar Örn Rúnarsson og Hörður Sveinsson tvö og Kenneth Gustavsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hvor.
Liðin hafa mæst 10 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast árið 2000. Keflavík hefur unnið 4 bikarleiki en KR 6. Markatalan í bikarnum er 16-23 fyrir KR. Guðmundur Steinarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en það var í síðasta bikarleik liðanna sem lauk með 2-1 sigri Keflvíkinga árið 2000.
Síðastliðið sumar mættust liðin að sjálfsögðu tvisvar í Landsbankadeildinni. Fyrri leikurinn var í 1. umferð deildarinnar á KR-velli. Keflavík vann 2-1 í fjörugum leik þar sem Guðmundur Steinarsson náði forystunni og Símun Samuelsen bætti við marki áður en Björgólfur Takefusa minnkaði muninn fyrir KR. Seinni leiknum í Keflavík lauk með 1-1 jafntefli. Þar náði Símun forystunni fyrir okkar menn en Björgólfur jafnaði fyrir KR. Ómar markmaður varði vítaspyrnu frá Rúnari Kristinssyni í leiknum.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Sonur Guðna, Haukur Ingi, hefur einnig leikið fyrir Keflavík og KR og seinni árin hafa Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða. Nú leikur Jónas Guðni Sævarsson með KR eftir að hafa skipt úr Keflavík fyrir þetta tímabil.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2007 |
Keflavík - KR |
1-1 | Símun Samuelsen | ||
2006 |
Keflavík - KR |
3-0 | Magnús Þorsteinsson Daniel Severino Símun Samuelsen | ||
2005 |
Keflavík - KR |
2-1 | Guðmundur Steinarsson 2 | ||
2004 |
Keflavík - KR |
3-1 | Stefán Gíslason Scott Ramsay Hörður Sveinsson | ||
2002 |
Keflavík - KR |
0-1 | |||
2001 |
Keflavík - KR |
3-1 | Þórarinn Kristjánsson 2 Guðmundur Steinarsson | ||
2000 |
Keflavík - KR |
1-0 | Zoran Ljubicic | ||
1999 |
Keflavík - KR |
1-3 | Eysteinn Hauksson | ||
1998 |
Keflavík - KR |
1-0 | Róbert Sigurðsson | ||
1997 |
Keflavík - KR |
1-1 | Eysteinn Hauksson |