Keflavík - KR á sunnudag kl. 19:15
Keflavík og KR nætast í 10. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 15. júlí. Leikur liðanna fer fram á Keflavíkurvelli og hefst kl. 19:15. Það er óhætt að hvetja stuðningsmenn til að mæta á þennan leik enda er jafnan mikið fjör þegar þessi lið mætast. Leikurinn skiptir miklu máli fyrir bæði lið; okkar menn þurfa stig til að halda sér í toppbaráttu deildarinnar og KR-ingar berjast á botninum. Keflavík hefur unnið síðustu þrjá heimaleiki gegn KR og sex af tíu síðustu leikjum liðanna í Keflavík. Tveimur þeirra hefur lokið með jafntefli og KR hefur unnið tvo þeirra. Dómari á leiksins verður Jóhannes Valgeirsson, aðstoðardómarar Einar Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason og eftirlitsmaður KSÍ verður Guðmundur Sigurðsson.
Keflavík og KR hafa leikið 82 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 31 leikjum en KR í 27 leikjum, 24 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 115-123, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Sex leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sjö mörk, Þórarinn Kristjánsson fjögur, Símun Samuelsen tvö og Baldur Sigurðsson, Kenneth Gustavsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hver.
Liðin hafa mæst 10 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast árið 2000. Keflavík hefur unnið 4 bikarleiki en KR 6. Markatalan í bikarnum er 16-23 fyrir KR. Guðmundur Steinarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en það var í síðasta bikarleik liðanna sem lauk með 2-1 sigri Keflvíkinga árið 2000.
Fyrr í sumar mættust liðin í 1. umferð Landsbankadeildarinnar á KR-velli. Keflavík vann 2-1 í fjörugum leik þar sem Guðmundur Steinarsson náði forystunni og Símun Samuelsen bætti við marki áður en Björgólfur Takefusa minnkaði muninn fyrir KR.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Sonur Guðna, Haukur Ingi, hefur einnig leikið fyrir Keflavík og KR og seinni árin hafa Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2006 |
Keflavík - KR |
3-0 | Magnús Þorsteinsson Daniel Severino Símun Samuelsen | ||
2005 |
Keflavík - KR |
2-1 | Guðmundur Steinarsson 2 | ||
2004 |
Keflavík - KR |
3-1 | Stefán Gíslason Scott Ramsay Hörður Sveinsson | ||
2002 |
Keflavík - KR |
0-1 | |||
2001 |
Keflavík - KR |
3-1 | Þórarinn Kristjánsson 2 Guðmundur Steinarsson | ||
2000 |
Keflavík - KR |
1-0 | Zoran Ljubicic | ||
1999 |
Keflavík - KR |
1-3 | Eysteinn Hauksson | ||
1998 |
Keflavík - KR |
1-0 | Róbert Sigurðsson | ||
1997 |
Keflavík - KR |
1-1 | Eysteinn Hauksson | ||
1996 |
Keflavík - KR |
2-2 | Eysteinn Hauksson Jóhann B. Guðmundsson |