Fréttir

Knattspyrna | 7. ágúst 2010

Keflavík - KR á sunnudag kl. 19:15

Keflavík og KR nætast í 15. umferð Pepsi-deildarinnar sunnudaginn 8. ágúst.  Leikur liðanna fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15.  Fyrir umferðina eru liðin á svipuðum slóðum í deildinni, Keflavík er í 4. sæti með 23 stig en KR er í 6. sæti með 19 stig og á leik inni.  Það er því mikið í húfi fyrir bæði lið og segja má að það lið sem krækir í þrjú stig haldi sér í toppbaráttunni.  Dómari leiksins verður Örvar Sær Gíslason, aðstoðardómarar Frosti Viðar Gunnarsson og Viðar Helgason og eftirlitsmaður KSÍ verður Jón Sigurjónsson. 

Keflavík og KR hafa leikið 88 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958.  Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 29 leikjum, 27 leikjanna hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 124-134, KR í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974.  Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.  Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað ellefu mörk gegn KR, Hörður Sveinsson þrjú, Jóhann B. Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson tvö og þeir Alen Sutej, Magnús Þorsteinsson og Haukur Ingi Guðnason eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast í úrslitaleiknum árið 2006.  Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 6.  Markatalan í bikarnum er 18-23 fyrir KR.  Guðmundur Steinarsson og Guðjón Antoníusson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.

Liðin mættust fyrr í sumar í Pepsi-deildinni og þá á heimavelli KR í Vesturbænum.  Þeim leik lauk með markalausu jafntefli í frekar daufri viðureign.  Segja má að sá leikur hafi verið undantekningin sem sannar regluna en leikir liðanna hafa yfirleitt verið mjög fjörugir og þau höfðu ekki gert markalaust jafntefli í 20 leikjum fyrir leikinn á KR-vellinum.

Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum.  Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin.  Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna.  Seinni árin hafa Stefán Gíslason, Jónas Guðni Sævarsson og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.  Haukur Ingi Guðnason lék á sínum tíma með KR og einn fyrrverandi leikmaður okkar, Baldur Sigurðsson, leikur nú með liðinu.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2009

Keflavík - KR

1-2 Guðmundur Steinarsson
2008

Keflavík - KR

4-2 Guðmundur Steinarsson 2
Hörður Sveinsson
Símun Samuelsen
2007

Keflavík - KR

1-1 Símun Samuelsen
2006

Keflavík - KR

3-0 Magnús Þorsteinsson
Daniel Severino
Símun Samuelsen
2005

Keflavík - KR

2-1 Guðmundur Steinarsson 2
     2004    

Keflavík - KR

3-1 Stefán Gíslason
Scott Ramsay
Hörður Sveinsson
2002

Keflavík - KR

0-1
2001

Keflavík - KR

3-1 Þórarinn Kristjánsson 2
Guðmundur Steinarsson
2000

Keflavík - KR

1-0 Zoran Ljubicic
1999

Keflavík - KR

1-3 Eysteinn Hauksson