Keflavík - KR á sunnudag kl. 19:15
Keflavík og KR mætast í Pepsi-deildinni sunnudaginn 12. maí í fyrsta heimaleik sumarsins. Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15. Okkar lið tapaði á útivelli gegn FH í fyrstu umferðinni en KR vann Stjörnuna á heimavelli. Leikir þessara liða eru yfirleitt fjörugir og dramatískir og að sjálfsögðu reiknum við með að stuðningsmenn fjölmenni. Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar Frosti Viðar Gunnarsson og Haukur Erlingsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Ari Þórðarson.
Keflavík og KR hafa leikið 93 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, bæði lið hafa sigrað í 32 leikjum en 29 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 128-143, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað þrjú mörk, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Frans Elvarsson, Magnús Þórir Matthíasson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hver. Þjálfarinn Zoran Daníel Ljubicic gerði á sínum tíma eitt mark gegn KR en það var eina markið í leik liðanna í Keflavík árið 2000.
Liðin hafa mæst 12 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast árið 2010. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 7. Markatalan í bikarnum er 20-26 fyrir KR. Magnús Þórir Matthíasson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR.
Síðasta sumar mættust liðin að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni. Fyrri leiknum á Nettó-vellinum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Emil Atlason kom KR yfir en Guðmundur Steinarsson jafnaði fyrir Keflavík. KR vann seinni leikinn á KR-velli í síðustu umferðinni. Þar urðu lokatölur 3-0 þar sem okkar menn gerðu sjálfsmark og Guðmundur R. Gunnarsson og Þorsteinn Már Ragnarsson gerðu eitt mark hvor.
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross, Pétur Pétursson og Willum Þór Þórsson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Seinni árin hafa Haukur Ingi Guðnason, Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða. Tveir fyrrverandi leikmenn okkar, Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson, leika nú með KR.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2012 | Keflavík - KR | 1-1 | Guðmundur Steinarsson |
2011 | Keflavík - KR | 2-3 |
Frans Elvarsson Magnús Þórir Matthíasson |
2010 | Keflavík - KR | 0-1 | |
2009 | Keflavík - KR | 1-2 | Guðmundur Steinarsson |
2008 | Keflavík - KR | 4-2 |
Guðmundur Steinarsson 2 Hörður Sveinsson Símun Samuelsen |
2007 | Keflavík - KR | 1-1 | Símun Samuelsen |
2006 | Keflavík - KR | 3-0 |
Magnús Þorsteinsson Daniel Severino Símun Samuelsen |
2005 | Keflavík - KR | 2-1 | Guðmundur Steinarsson 2 |
2004 | Keflavík - KR | 3-1 |
Stefán Gíslason Scott Ramsay Hörður Sveinsson |
2002 | Keflavík - KR | 0-1 |