Fréttir

Keflavík - KR á sunnudag kl. 19:15
Knattspyrna | 17. maí 2014

Keflavík - KR á sunnudag kl. 19:15

Keflavík og KR mætast í Pepsi-deildinni sunnudaginn 18. maí.  Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15.  Leikurinn var upphaflega heimaleikur KR en félögin víxluðu heimaleikjum sumarsins vegna þess að völlur þeirra KR-inga er ekki tilbúinn.  Fyrir leikinn er Keflavík í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga en KR er í 8. sætinu með þrjú stig.  Leikir þessara liða eru yfirleitt fjörugir og dramatískir og að sjálfsögðu reiknum við með að stuðningsmenn fjölmenni.  Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar Gunnar Sverrir Gunnarsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Jón Sigurjónsson. 

Efsta deild
Keflavík og KR hafa leikið 95 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958.  Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum og KR í 34 en 29 leikjanna hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 128-148, KR í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974.  Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað þrjú mörk, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Frans Elvarsson, Magnús Þórir Matthíasson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hver.  Það er hins vegar Guðmundur Steinarsson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn KR í efstu deild eða 12, næstir eru Jón Ólafur Jónsson og Steinar Jóhannsson með 8 mörk hvor.

Bikarkeppnin
Liðin hafa mæst 12 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast árið 2010.  Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 7.  Markatalan í bikarnum er 20-26 fyrir KR.  Magnús Þórir Matthíasson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR.  Ragnar Margeirsson hefur gert flest bikarmörk gegn KR en þau voru þrjú talsins.

Í fyrra
Síðasta sumar mættust liðin að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni og þá vann KR báða leikina.  Fyrri leiknum á Nettó-vellinum lauk 0-2 en þar skoraði Baldur Sigurðsson bæði mörkin.  Seinni leikurinn á KR-velli fór 0-3, þar gerði Kjartan Henry Finnbogason tvö mörk og Emil Atlason eitt.

Bæði lið
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum.  Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross, Pétur Pétursson og Willum Þór Þórsson hafa allir þjálfað bæði liðin.  Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna.  Seinni árin hafa Haukur Ingi Guðnason, Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.  Tveir fyrrverandi leikmenn okkar, Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson, leika nú með KR.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum Keflavíkur og KR í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:


2013 Keflavík - KR 0-2  
2012 Keflavík - KR 1-1 Guðmundur Steinarsson
2011 Keflavík - KR 2-3 Frans Elvarsson
Magnús Þórir Matthíasson
2010 Keflavík - KR 0-1  
2009 Keflavík - KR 1-2 Guðmundur Steinarsson
2008 Keflavík - KR 4-2 Guðmundur Steinarsson 2
Hörður Sveinsson
Símun Samuelsen
2007 Keflavík - KR 1-1 Símun Samuelsen
2006 Keflavík - KR 3-0 Magnús Þorsteinsson
Daniel Severino
Símun Samuelsen
2005 Keflavík - KR 2-1 Guðmundur Steinarsson 2
2004 Keflavík - KR 3-1 Stefán Gíslason
Scott Ramsay
Hörður Sveinsson

Leikurinn
Að þessu sinni rifjum við upp bikarúrslitaleik Keflavíkur og KR árið 2006.  Keflavík vann leikinn 2-0 og varð bikarmeistari í fjórða sinn.  Þess má geta að Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson voru í okkar liði í þessum leik en þeir leika nú báðir með KR.  Einn leikmaður Keflavíkur í leiknum er enn í okkar liði en það er Magnús Sverrir Þorsteinsson.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.