Keflavík - Leiknir F. á laugardag kl. 16:00
Nú fer keppni í Inkasso-deildinni að styttast í annan endann en á laugardaginn tökum við á móti Leiknismönnum frá Fáskrúðsfirði. Liðin spila á Nettó-vellinum og hefja leik kl. 16:00. Fyrir leikinn er Keflavík í 3. sæti deildarinnar með 30 stig og hefur að litlu að keppa. Leiknismenn eru hins vegar í neðsta sætinu og berjast harðri baráttu fyrir sæti sínu í deildinni. Dómari þessa leiks verður Vilhelm Adolfsson, aðstoðardómarar hans þeir Sigurður Ingi Magnússon og Bjarki Óskarsson en eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson.