Keflavík - Sindri á laugardag kl. 14:00
Á laugardaginn leika Keflavík og Sindri í 1. deild kvenna og hefst leikurinn kl. 14:00 á Nettó-vellinum í Keflavík. Leikurinn er í 5. umferð deildarinnar en okkar lið hefur reyndar aðeins náð að leika tvo leiki en tveimur leikja liðsins hefur verið frestað. Dómari leiksins verður Bríet Bragadóttir og aðstoðardómarar hennar feðginin Bergur Þór Steingrímsson og Ellen Elísabet Bergsdóttir en við Keflvíkingar þekkjum Berg auðvitað vel sem einn reyndasta körfuboltadómara landsins.
Keflavík og Sindri hafa áður leikið tvo leiki í B-deildinni en það var árið 2011. Keflavík vann þá báða leikina, 7-1 á heimavelli og 2-0 fyrir austan. Liðin léku svo í 1. umferð bikarkeppninnar í fyrra og þá vann Keflavík 3-1 á útivelli. Hulda Matthíasdóttir, Dagmar Þráinsdóttir og Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir gerðu mörk Keflavíkur í þeim leik.