Keflavík - Stjarnan á laugardag kl. 12:00
Á laugardaginn er komið að næsta leik í Lengjubikarnum þegar Stjörnumenn koma í heimsókn. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 12:00. Okkar menn byrjuðu með tapi gegn Víkingum í fyrsta leik sínum í keppninni en Stjörnumenn unnu KA. Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarar þeir Andri Vigfússon og Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson.
Nú er um að gera að skella sér á leikinn og styðja okkar menn. Fyrir þá sem ekki komast í Höllina má taka fram að leikurinn verður sýndur beint á SportTv.