Keflavík - Stjarnan á laugardag kl. 12:00
Á laugardag kl. 12:00 er komið að næsta leik í Lengjubikarnum en þá koma Stjörnumenn í heimsókn í Reykjaneshöllina. Okkar menn gerðu jafntefli við Hauka í fyrsta leik sínum í riðlinum enn töpuðu síðan fyrir KR. Stjarnan hefur leikið þrjá leiki, unnið tvo en tapað einum.
Dómari leiksins á laugardaginn verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar hans verða þeir Haukur Erlingsson og Óli Njáll Ingólfsson en Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ.