Keflavík - Stjarnan á miðvikudag kl. 19:00
Miðvikudaginn 9. mars mæta Stjörnumenn í heimsókn og mæta okkar mönnum í Lengjubikarnum. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og þar verður flautað til leiks kl. 19:00. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson sér um að dæma leikinn og honum til aðstoðar verða þeir Oddur Helgi Guðmundsson og Gylfi Tryggvason.
Keflavík hefur leikið tvo leiki í riðlinum. Fyrsta leiknum lauk með 1-0 sigri gegn ÍBV og i kjölfarið fylgdi markalaust jafntefli gegn Val. Stjörnumenn hafa unnið sína leiki nokkuð örugglega, gegn Fram og ÍBV.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta í Reykjaneshöllina á miðvikudaginn og sjá góðan leik. Okkar menn hafa verið að spila prýðilega í mótinu og vonandi verður framhald á þeirri frammistöðu. Þess má geta að nýjasti leikmaður okkar, skoski varnarmaðurinn Marc McAusland, lék sinn fyrsta leik gegn Val og nú er tækifæri til að skoða kappann í fyrsta heimaleiknum.