Fréttir

Keflavík - Stjarnan á sunnudag kl. 20:00
Knattspyrna | 14. júní 2014

Keflavík - Stjarnan á sunnudag kl. 20:00

Á sunnudag er komið að enn einum stórleiknum í Pepsi-deildinni en þá koma ósigraðir Stjörnumenn í heimsókn í 8. umferð deildarinnar.  Leikurinn verður á Nettó-vellinum í Keflavík og það er rétt að benda sérstaklega á að leikurinn hefst kl. 20:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 3.-4. sæti deildarinnar með 12 stig en Stjarnan er í 2. sæti með 15 stig.  Þetta verður því væntanlega hörkuleikur tveggja liða sem vilja styrkja stöðu sína í deildinni, okkar menn reyndar á botninum en gestirnir í toppbaráttunni.  Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson, aðstoðardómarar Jóhann Gunnar Guðmundsson og Bryngeir Valdimarsson, varadómari er Gunnar Sverrir Gunnarsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Eyjólfur Ólafsson.  Þess má geta að leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Efsta deild
Keflavík og Stjarnan hafa leikið 18 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1994. Keflavík hefur unnið sjö leiki en Stjarnan sex og fimm sinnum hefur orðið jafntefli. Markatalan er 26-24 fyrir Keflavík. Jóhann Birnir Guðmundsson hefur skorað fimm mörk gegn Stjörnunni í efstu deild, Hörður Sveinsson fjögur og Einar Orri Einarsson og Magnús Þórir Matthíasson eitt mark hvor.  Það er einmitt Jóhann Birnir sem hefur gert flesti mörk fyrir Keflavík gegn Stjörnunni í efstu deild.

B-deild
Liðin léku fjóra leiki í B-deildinni, árin 1992 og 2003. Keflavík vann tvo þessara leikja og Stjarnan einn en einum leik lauk með jafntefli. Markatalan er 8-6 fyrir Keflavík. Einn núverandi leikmaður Keflavíkur hefur skorað í leikjum liðanna í næstefstu deild en það er Magnús Þorsteinsson.

Bikarkeppnin
Keflavík og Stjarnan hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppni KSÍ en það var árið 2008. Þá vann Keflavík 2-1 á heimavelli í 32 liða úrslitum keppninnar. Magnús Þorsteinsson skoraði fyrir Keflavík í þeim leik.

Í fyrra
Liðin léku að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni síðasta sumar.  Fyrri leikurinn var á Samsung-vellinum í Garðabæ.  Stjörnumenn unnu þann leik og gerði Ólafur Karl Finsen eina mark leiksins.  Stjarnan vann einnig seinni leikinn á Nettó-vellinum og þá 2-0.  Aftur var það Ólafur Karl sem reyndist okkar mönnum erfiður ljár í þúfu en hann gerði bæði mörkin.

Bæði lið
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og Stjörnunni í gegnum árin, m.a. Grétar Atli Grétarsson, Adolf Sveinsson, Kristinn Guðbrandsson, Helgi Björgvinsson og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Magnús Þormar.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Stjörnunnar í Keflavík hafa orðið þessi:

2013 Keflavík - Stjarnan 0-2  
2012 Keflavík - Stjarnan 0-1  
2011 Keflavík - Stjarnan 4-2 Jóhann Birnir Guðmundsson 2
Hilmar Geir Eiðsson
Guðmundur Steinarsson
2010 Keflavík - Stjarnan 2-2 Hörður Sveinsson 2
2009 Keflavík - Stjarnan 1-1 Hörður Sveinsson
2003 Keflavík - Stjarnan (B-deild)  5-3 Stefán Gíslason 2
Magnús Þorsteinsson
Adolf Sveinsson
Hafsteinn Rúnarsson
2000 Keflavík - Stjarnan 1-0 Guðmundur Steinarsson
1997 Keflavík - Stjarnan 2-1 Eysteinn Hauksson
Haukur Ingi Guðnason
1996 Keflavík - Stjarnan 0-1 Jóhann B. Guðmundsson
1994 Keflavík - Stjarnan 4-1 Ragnar Margeirsson 2
Kjartan Einarsson
Sverrir Þór Sverrisson
1992 Keflavík - Stjarnan (B-deild)   1-0 Marco Tanasic

Leikurinn
Að þessu sinni rifjum við upp fyrsta heimaleik Keflavíkur gegn Stjörnunni í efstu deild.  Keflavík vann öruggan sigur í leiknum og munaði þar mestu um stórleik, Ragnars Margeirssonar.  Meðal leikmanna Keflavíkur var Marco Tanasic en það er athyglisvert að hinir ellefu sem tóku þátt í leiknum voru allir heimamenn.  Að neðan má sjá umfjöllun Morgunblaðsins um leikinn.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.