Keflavík - Þór á laugardag kl. 14:00
Laugardaginn 1. október leika Keflavík og Þór í 22. og síðustu umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum og hefst kl. 14:00. Fyrir leikinn eru bæði lið í 8.-10. sæti deildarinnar með 21 stig og eru meðal fjögurra liða sem eru í fallbaráttu í síðustu umferðinni. Keflavík dugir jafntefli til að halda sæti sínu í deildinni en tapist leikurinn þurfum við að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon, varadómari er Erlendur Eiríksson og Sigurður Hannesson er eftirlitsmaður KSÍ. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Það skal tekið fram að ókeypis er á leikinn í boði fyrirtækja í Keflavík.
Keflavík og Þór hafa leikið 23 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1977. Keflavík hefur unnið átta leikjanna, níu sinnum hefur orðið jafntefli en Þór hefur unnið sex leiki. Markatalan er 41-35 fyrir Keflavík. Stærsti sigur Keflavík er 5-2 sigur árið 1993 og það er jafnframt mesti markaleikur liðanna í efstu deild. Þórsarar hafa mest unnið Keflavík með tveggja marka mun. Tveir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Þór í efstu deild, Hilmar Geir Eiðsson skoraði fyrr í sumar og Magnús Þorsteinsson skoraði gegn Þórsurum árið 2002.
Liðin mættust 4 sinnum í næstefstu deild árin 1991 og 2003. Þór vann tvo leikjanna en hinum tveimur lauk með jafntefli. Markatalan í B-deildinni er 6-9 fyrir Þór.
Liðin hafa mæst fjórum sinnum í bikarkeppni KSÍ, árin 1987, 1991, 1993 og 2009. Þór vann tvo fyrstu leikina eftir vítaspyrnukeppni en Keflavík vann tvo þá síðari. Markatalan er 6-4 fyrir Keflavík.
Það hefur ekki verið mikill samgangur milli félaganna tveggja í gegnum árin. Kristján Guðmundsson þjálfaði reyndar bæði liðin á sínum tíma og Pétur Heiðar Kristjánsson er nú í herbúðum Þórs en hann lék með Keflavík árið 2007. Áður höfðu Óli Þór Magnússon og Ólafur Pétursson leikið með báðum þessum félögum.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Þórs í efstu deild á heimavelli okkar hafa orðið þessi:
2003 |
Keflavík - Þór |
2-2 | Hörður Sveinsson Adolf Sveinsson | ||
1994 |
Keflavík - Þór |
2-1 | Marco Tanasic Óli Þór Magnússon | ||
1993 |
Keflavík - Þór |
5-2 | Óli Þór Magnússon 2 Gestur Gylfason Marco Tanasic Ragnar Steinarsson | ||
1989 |
Keflavík - Þór |
1-1 | Kjartan Einarsson | ||
1988 |
Keflavík - Þór |
1-1 | Sjálfsmark | ||
1987 |
Keflavík - Þór |
2-0 | Óli Þór Magnússon Ingvar Guðmundsson | ||
1986 |
Keflavík - Þór |
2-3 | Einar Ásbjörn Ólafsson Freyr Sverrisson | ||
1985 |
Keflavík - Þór |
3-1 | Ragnar Margeirsson Gunnar Oddsson Ingvar Guðmundsson | ||
1984 |
Keflavík - Þór |
1-2 | Óskar Færseth | ||
1983 |
Keflavík - Þór |
2-1 |
Sigurður Björgvinsson | ||
1977 |
Keflavík - Þór |
3-2 | Sigurður Björgvinsson 2 Þórir Sigfússon |