Keflavík - Þór/KA á laugardag kl. 14:00
Laugardaginn 30. júní tekur Keflavík á móti Þór/KA í 16 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 14:00. Okkar stúlkur ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en Akureyringar eru í efsta sæti Pepsi-deildar kvenna. Dómari leiksins verður Einar Ingi Jóhannsson og aðstoðardómarar hans þeir Jóhannes Elíasson og Ægir Magnússon.
Keflavík og Þór/KA hafa einu sinni mæst í bikarnum en það var árið 2006. Liðin léku þá á Akureyri í 2. umferð keppninnar og Keflavík vann þann leik 4-0. Keflavík hafði áður leikið tvívegis við Þór í bikarnum; Keflavík vann 2-1 í undarúrslitum árið 1991 en ári seinna vann Þór öruggan 7-0 sigur í 1. umferð keppninnar.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og styðja stelpurnar í þessum stórleik.