Keflavík - Þróttur á sunnudag kl. 18:00
Keflavík og Þróttur leika í 13. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 7. ágúst. Leikurinn fer fram á Keflavíkurvelli og við vekjum athygli á því að hann hefst kl. 18:00. Það er ljóst að það verður hart barist; Þróttarar eru í harðri botnbaráttu en okkar menn eru í 3. sæti deildarinnar og ætla sér að sjálfsögðu að halda því. Dómari leiksins verður enginn annar en Egill Már Markússon, aðstoðardómarar hans þeir Einar Sigurðsson og Leiknir Ágústsson en eftirlitsmaður er Ólafur Sigurbjörn Magnússon.
Leikurinn á sunnudag er Atlantsolíuleikurinn en fyrirtækið styður knattspyrnudeild Keflavíkur varðandi þennan leik.
Keflavík og Þróttur hafa leikið 23 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1959. Keflavík hefur unnið 11 leiki, Þróttur hefur haft betur í 4 leikjum en 8 hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 38-24, Keflavík í vil. Liðin hafa ekki leikið marga leiki í efstu deild undanfarin ár og fáir þeirra leikmanna sem nú leika með Keflavík hafa skorað gegn Þrótti; Hörður Sveinsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu mörkin í fyrri leik liðanna í sumar en Gestur Gylfason skoraði í leik í B-deild árið 1991. Stærsti sigur Keflavík gegn Þrótti var 8-1 árið 1959 en Þróttarar unnu 5-1 árið 1998 þegar liðin léku síðast saman í efstu deild.
Liðin hafa fjórum sinnum mæst í bikarkeppninni, fyrst árið 1961 en síðast árið 1991. Keflavík hefur unnið þrjá leikjanna en Þróttur einn. Markatalan er 13-11 fyrir Keflavík. Gestur Gylfason hefur skorað eitt bikarmark í leikjum þessara liða, það var í leiknum árið 1991 sem Keflavík vann 4-3.
Ekki hefur verið mikill samgangur milli Keflavíkur og Þróttar í gegnum árin. Elstu menn muna ekki eftir leikmönnum sem hafa leikið fyrir bæði félögin og er Þórarinn Kristjánsson því sá fyrsti sem þar gerir. Hann gekk til liðs við Þrótt í vor eftir að hafa leikið með Aberdeen í vetur.
Hér má sjá úrslit í leikjum liðanna í Keflavík undanfarin ár:
1998 | A-deild | Keflavík - Þróttur | 1-5 | Sasa Pavic |
1992 | B-deild | Keflavík - Þróttur | 6-2 | Óli Þór Magnússon 3 Kjartan Einarsson 2 Gunnar Magnús Jónsson |
1991 | B-deild | Keflavík - Þróttur | 4-0 | Kristján Hilmarsson 2 Marco Tanasic Gestur Gylfason |
1985 | A-deild | Keflavík - Þróttur | 2-1 | Sigurjón Kristjánsson 2 |
1984 | A-deild | Keflavík - Þróttur | 1-0 | Sigurður Björgvinsson |
1983 | A-deild | Keflavík - Þróttur | 3-2 | Ragnar Margeirsson Einar Ásbjörn Ólafsson Óli Þór Magnússon |
1981 | B-deild | Keflavík - Þróttur | 3-0 | Ragnar Margeirsson 3 |
1980 | A-deild | Keflavík - Þróttur | 1-1 | Ragnar Margeirsson |
1979 | A-deild | Keflavík - Þróttur | 1-1 | Steinar Jóhannsson |