Keflavík - Tindastóll á laugardag kl. 16:00
Laugardaginn 24. maí leika Keflavík og Tindastóll í 2. umferð 1. deildar kvenna. Þetta verður fyrsti heimaleikur okkar í deildinni á þessu sumri en flautað verður til leiks á Nettó-vellinum kl. 16:00. Dómari leiksins verður Árni Heiðar Guðmundsson og aðstoðardómarar þeir Sigurður Smári Hansson og Njáll Trausti Gíslason. Okkar stelpur töpuðu fyrsta leik í deildinni gegn Haukum en Tindastólsstúlkur gerðu jafntefli við Víking Ólafsvík.
Við hvetjum stuðningsmenn okkar til að mæta á völlinn og hvetja stelpurnar.